Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þegar ný vegalög taka gildi um áramót falla úr gildi eldri lög nr. 45/1994. Markmið laganna er að setja reglur um vegi og veghald sem stuðla að greiðum og öruggum samgöngum.
Ýmsar breytingar verða við gildistöku laganna. Fram hefur komið að hluti þeirra vega sem Vegagerðin hefur verið veghaldari fyrir fer til sveitarfélaganna. En einnig verður samkvæmt nýju lögunum strafrækt deild sem heyrir beint undir vegamálastjóra sem sjá mun um innra eftirlit með veghaldi Vegagerðarinnar. Einnig er lögð aukin áhersla á samráð um skipulag svo fátt eitt sé nefnt.
Lesa meira
Það vill brenna við þegar Vetur konungur heldur innreið sína að Íslendingar séu svolítið óviðbúnir. Þá reynir gjarnan á aksturshæfileikana en því miður duga þeir ekki alltaf til.
Vegagerðin kannar ástand vega og kemur þeim upplýsingum til almennings, þ.e.a.s. hvort greiðfært sé, hálkublettir eða flughálka svo dæmi séu tekin. Þetta þekkja flestir en hinsvegar vita ef til vill færri að þjónustustig Vegagerðarinnar eru mörg og mismunandi.
Lesa meira
Greinilegt er samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar að ökuhraði á þjóðvegunum er að minnka. Mælt hefur verið síðan árið 2004 og sumarið 2007 lækka tölurnar umtalsvert í fyrsta sinn. Hraðinn er jafnari en árin á undan og ljóst að mest dregur úr hraða þeirra sem aka hraðast.
Líklega má rekja þessa breytingu til öflugra eftirlits lögreglu, sjálfvirkra hraðamyndavéla og hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot.
Lesa meiraSamgönguráð hélt í gær fjórða fund sinn um stefnumótun í samgöngum. Umfjöllunarefnið að þessu sinni var: Samgöngur og umhverfi.
Matthildur Bára Stefánsdóttir hjá Vegagerðinni fjallaði um það hvað gert er hjá Vegagerðinni til að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda og mengun. Jón Bernódusson hjá Siglingamálastofnun talaði um möguleika á að nota repju til að koma í stað olíu á skip og Sveinn V. Ólafsson hjá Flugmálastjórn talaði um nýja reglur í Evrópu sem kveða á um mikla minnkun losunar gróurhúsalofttegunda í fluginu, nái þær fram að ganga. Lesa meira
Framkvæmdir eru hafnar við Hófaskarðsleið eða Norðausturveg en áætluð verklok eru í nóvember 2009.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að styrkja samgöngur milli byggðakjarna á Norðausturlandi, að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu með því að leggja veg með hönnunarhraða 90 km/klst.
Jafnframt að lágmarka akstursfjarlægð á milli þéttbýliskjarna og stuðla þannig að myndun eins þjónustusvæðis sem nær til Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar. Almennt verður nýr vegur öruggari og greiðfærari en núverandi vegur, auk þess sem hann kemur til með að stytta vegalengdir verulega milli þéttbýlisstaða.
Lesa meira
Staðreyndin er að 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum er með öruggustum vegum sem byggðir eru og algjörlega ástæðulaust að óttast slíkan veg. Einungis 2+2 vegur með vegriðum beggja vegna er öruggari samkvæmt rannsóknum sænsku vegagerðarinnar.
24 stundir halda því fram í blaðinu á fimmtudag að Norðmenn séu hræddir við 2+1 veg. Þar var greinilega verið að fjalla um veg án vegriðs til að aðskilja akreinarnar. Það er ekki hægt að bera saman öryggi á slíkum vegi og þeim 2+1 vegum sem menn hafa hugmyndir um að byggja hér á landi.
Lesa meira
Yfir 150 manns sóttu 6. ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem haldin var á Hilton Hotel Nordica þann 2. nóvember síðastliðinn.
Fyrirlestrarnir eru nú aðgengilegir hér á netinu .....
Frestur vegna athugasemda við drög að tillögu til matsáætlunar vegna mislægra gatnamóta við Hallsveg, Úlfarfellsveg og Vesturlandsveg hefur verið framlengdur til 19. nóvember.
Sjá fyrri tilkynningu.
Vegagerðin kynnir hér með tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.
Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í dag um ljósastaura og vegrið er rétt að benda á eftirfarandi:
Hjá Vegagerðinni hafa menn gert sér grein fyrir stöðu ljósastauranna á Reykjanesbraut og Vesturlandsvegi sem menn á vegum EuroRapverkefnisins hafa gert athugasemdir við. Frá því í sumar hefur verið í gangi vinna við að yfirfara ástandið. Hersla á boltum í svokölluðum brotstaurum reyndist ekki rétt og hefur það verið lagfært víða og unnið er að því að ljúka þeirri vinnu.
Lesa meira6. ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar var haldin 2. nóvember og sóttu hana meira en 150 manns. 20 erindi um rannsóknir sem Vegagerðin styrkir eða tekur þátt í voru haldin og komust færri að en vildu.
Samkvæmt lögum rennur 1 prósent af mörkuðum tekjum Vegagerðarinnar til rannsókna og með nýjum lögum sem taka gildi um áramót hækkar þetta framlag í 1,5 prósent.
Þetta hjálpar því undanfarið hefur verið sótt um styrk til rannsókna fyrir helmingi meira fé en til ráðstöfunar er.
Lesa meirajanúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember