Fréttir

29.10.2007 : Hallsvegur, Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg - Drög að tillögu að matsáætlun

Hallsvegur - Úlfarfellsvegur

Vegagerðin og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar kynna hér drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við mislæg gatnamót við Vesturlandsveg, Hallsveg og Úlfarfellsveg.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að tengja Grafarvogshverfi ásamt hverfunum í Hamrahlíðum og Úlfarsárdal við Vesturlandsveg og tengja hverfin innbyrðis. Lesa meira

25.10.2007 : Ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar - skráningu lýkur 30. október

Ráðstefnan um rannsóknir Vegagerðarinnar 2007

Ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar – skráningu lýkur 30. október. Nú styttist í ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem verður haldin á Hótel Nordica föstudaginn 2. nóvember næstkomandi (sjá frétt frá 1/10/2007).


Lokafrestur til að skrá sig á ráðstefnuna er 30. október.

Lesa meira

23.10.2007 : Grímseyjarferjan: Góður gangur

Fjoririferjunni

Góður gangur er þessa dagana í endurbótum Grímseyjarferjunnar nýju. Reiknað er með að endurbótum hjá skipasmíðastöðinni Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði ljúki eftir um það bil mánuð eða í lok nóvember og að ferjan verði til reiðu öðru hvoru megin við áramótin.


Þriðjudag fundaði verkefnisstjórn framkvæmdanna með fulltrúum frá Öryrkjabandalaginu og einnig með fulltrúum Grímseyinga. Voru þetta gagnlegir fundir báðið tveir.

Lesa meira

18.10.2007 : Vel heppnaður fundur með verktökum

Búkolla

Ríflega 20 verktakar hvaðanæva að af landinu mættu á ráðgjarfarnefndarfund Vegagerðarinnar og verktaka í Borgartúni 7 á miðvikudag. Á fundinum skiptust menn opið á hugmyndum og ræddu hlutina vítt og breitt.


Þetta er fyrsti fundurinn en framhald verður á og ætlunin að slíkir fundir verði haldnir reglulega héðan í frá.

Lesa meira

16.10.2007 : Óánægja og ánægja

Flutningar eru margvíslegir

Í viðhorfskönnun sem Lausnir hafa unnið fyrir Vegagerðina kemur fram að óánægja flutningsaðila með vegakerfið á Íslandi vex heldur frá síðustu könnun en hinsvegar eykst ánægja verktaka með samskiptin við starfsmenn Vegagerðarinnar í útboðsmálum.


Lausnir vinna slíka könnun árlega þar sem talað er við 50 aðila, 25 úr hópi verktaka og 25 úr hópi flutningsaðila. Nú í ár fór könnunin fram í september.

Lesa meira

12.10.2007 : Samið um áætlunarflug til Vestmannaeyja

Samningur handsalaður að lokinni undirskrift

Vegamálastjóri og forstjóri Flugfélag Íslands skrifuðu undir samning um áætlunarflug á flugleiðinni Reykjavík – Vestmannaeyjar – Reykjavík föstudaginn 12. október. Samningurinn er tilkomin að undangegnu útboði.


Samkvæmt því mun Flugfélag Íslands á lágmarki fljúga tvær ferðir til Vestmannaeyja og til baka til Reykjavíkur á dag á tímabilinu 1. október til 31. maí og þrjár ferðir á dag á tímabilinu 1. júní til 30. september.

Lesa meira

10.10.2007 : Umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði

Frá umferðarkönnuninni í sumar

Vegagerðin áætlar að standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði, fimmtudaginn 11. október og laugardaginn 13. október 2007. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Rétt er þó að geta þess að ef veðurspá verður óhagstæð gæti könnunin frestast um viku.


Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli einstakra staða og og svæða. Niðurstöður munu m.a. nýtast við áætlanagerð.

Lesa meira

4.10.2007 : Flestir vilja breiðari vegi

Þróun svara síðan 2002 - graf

Í könnun sem kem Capacent Gallup vann fyrir Vegagerðina um viðhorf almennings til þjóðvegakerfins í sumar kom fram að langflestir vilja sjá breikkun vega eða ríflega 60 prósent. Næst nefna menn meira bundið slitlag.


Gallup vann þessa könnun í sumar, en könnun af þessu tagi fer fram tvisvar á ári.

Lesa meira

3.10.2007 : Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og efnistöku

Bakkafjöruhöfn - Kort

Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar (254) og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.


Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar er 19. október 2007.

Lesa meira

2.10.2007 : Ríkinu og Vegagerðinni stefnt vegna Vestfjarðavegar

Leid B 2. áfangi

Eigendur tveggja jarða í Þorskafirði, Fuglaverndarfélag Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands hafa stefnt Íslenska ríkinu og Vegagerðinni vegna úrskurðar fyrrverandi umhverfisráðherra sem heimilaði leið B í 2. áfanga Vestfjarðavegar.


Um er að ræða nýjan veg um Teigsskóg og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Úrskurður umhverfisráðherra féll 5. janúar síðastliðinn.

Lesa meira

1.10.2007 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2007 auglýst

Rannsóknarráðstefna 2007

Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 2. nóvember 2007 á Hótel Nordica.

Meginmarkmið með rannsóknum og þróun hjá Vegagerðinni er að skapa nýja þekkingu og afla nýrra gagna, þannig að íslenska vegakerfið geti orðið skilvirkara, öruggara og hagkvæmara í byggingu og rekstri og veita betri þjónustu við vegfarendur með auknu umferðaröryggi.

Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar er ætlað að koma á framfæri niðurstöðum rannsókna sem styðja þessi markmið og hafa hlotið styrki úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Lesa meira



Útlit síðu: