Fréttir

28.9.2007 : Framtíðin felst í aukinni þjónustu

Frá íslenska básnum á PIARC

Þörfin fyrir upplýsingar um vegakerfið eykst sífellt. Upplýsingarnar þurfa að berast jafnóðum og helst þannig að hægt verði að spá fyrir um ástand vegar fram í tímann.


Á PIARC sýningunni í París í síðustu viku kynnti Vegagerðin ásamt verkfræðistofunum Samrás og Samsýn og ND á Íslandi framtíðarsýn í þessum efnum.


Málið snýst um að safna sem mestum upplýsingum um vegakerfið, um veður, færð, umferð og svo framvegis á einn stað og vinna þar upplýsingar sem nýtast vegfarendum.

Lesa meira
 

27.9.2007 : Skipulagsstofnun fellst á tillögu Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar að matsáætlun vegna 2. áfanga Sundabrautar

Sundabraut 2. áfangi, valkostir

Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar kemur fram að í umsögnum Reykjavíkurborgar, Byggðastofnunar, veiðimálastjórnar Landbúnaðarstofnunar, Siglingastofnunar Íslands og Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar eru ekki gerðar athugasemdir við efni tillögu að matsáætlun.


Fallist er á tillöguna með athugasemdum en um er að ræða Sundabraut frá Gufunesi að tengingu við Vesturlandsveg.

Lesa meira
 

25.9.2007 : 4000 vegagerðarmenn hittust á PIARC

Íslenski básinn á PIARC

Fyrsta alþjóða vegaráðstefnan var haldin árið 1908 og árið eftir var alþjóða vegamálasambandið PIARC stofnað.


Tilgangurinn með sambandinu var og er að þróa alþjóðlega samvinnu og styðja við framþróun í samgöngum á öllum sviðum.


23. ráðstefnan var haldin í París í síðustu viku. Hana sóttu um 4000 vegagerðarmenn allsstaðar að úr heiminum. Vegagerðin ásamt verkfræðistofunum Samrás og Samsýn og ND á Íslandi voru með bás á sýningunni og kynntu margir sér framtíðarsýnina sem þar var kynnt.

Lesa meira

 

18.9.2007 : Vegagerðin og Roadex efna til ráðstefnu um umferðalitla vegi á norðurslóðum

Roadex logo

Roadex verkefnið fjallar um gerð, uppbyggingu og rekstur fáfarinna vega á norðurjaðarsvæðum Evrópu.


Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 21. september 9:00 – 16:00 á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.


Lesa meira
 

17.9.2007 : Gjaldtaka í þágu umhverfisins

Íslenski básinn á PIARC

60 samgönguráðherra frá 50 löndum komu saman á opnunardegi 23. Piarc ráðstefnunnar í París á mánudag og ræddu um gjaldtöku vegna notkunar á vegum. Nokkur samhljómur var um nauðsyn þess að taka gjaldtöku í auknum mæli til að draga úr umferðartöfum og minnka mengun.


Piarc-ráðstefnan er haldin fjórða hvert ár af Alþjóða vegamálasambandinu (World Raod Association).


Vegagerðin ásamt samstarfsaðilum er með kynningarbás á ráðstefnunni þar sem kynnt er framtíðarsýn um samþættingu upplýsingarkerfa til auka öryggi og bæta þjónustu við vegfarendur.

Lesa meira
 

13.9.2007 : Vanda ber merkingar

Merkingum áfátt og þær rangar

Það verður ekki of brýnt fyrir verktökum að merkja vel vinnusvæðin. Á myndinni sem fylgir þessari frétt sést að ekki nóg með að illa sé merkt heldur vísar örin á skiltinu umferðinni á vinnusvæðið en ekki framhjá því.


Lögreglan stöðvaði þessar framkvæmdir þar sem gröfustjórinn neitaði að bæta úr merkingunum.

Lesa meira

 

12.9.2007 : Vel merktir Vegagerðarmenn

merking bíla 1

Nýlega var samþykkt innan Vegagerðarinnar að starfsmenn sem nota einkabíla sína fyrir Vegagerðina skuli merkja bílana.


Þannig eiga allir Vegagerðarbílar að vera merktir með merki Vegagerðarinnar og einnig með blikkljósi. Starfsmenn við vinnu eiga einnig að vera í endurskinsvestum.

Lesa meira

 

7.9.2007 : Nýtt hringtorg við Þingvallaveg

Hringtorgið á Vesturlandsvegi

Vinnu við hringtorgið á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallaafleggjara lauk í dag og er umferð nú komin á báðar akreinar torgsins.


Vinnan gekk mjög vel og voru verktakarnir, Ístak nokkuð á undan áætlun en verklok áttu að vera 11. september. Almenn ánægja er hvorttveggja með vinnubrögðin á meðan á framkvæmdinni stóð og með verkið sjálft.

Lesa meira
 

6.9.2007 : Ekki er öll vitleysan eins

Grímseyjarferjan

"Nýja Grímseyjarferjan sem nú liggur í Hafnarfjarðarhöfn verður auk þess mun betra skip, hraðskreiðara, hagkvæmara og aðstaða fyrir farþega mun betri. Miklu munar fyrir Grímseyinga að stytta siglingatímann um eina klukkustund."


Úr grein sem birtist í Fréttablaðinu og Blaðinu í dag 6. september. Lesa má alla greinina með því að smella á "Lesa meira".

Lesa meira
 

4.9.2007 : Engin óvissa um að Grímseyjarferja muni sigla

Grímseyjarferjan

Í Blaðinu 4. september er ýjað að því að hugsanlega standist hin nýja Grímseyjarferja ekki reglugerðir og ákvæði Evróputilskipunar um farþegasiglingar.


Ferjan hefur staðist lekastöðugleikakannanir og stenst slíkan stöðugleika núna -- að gefnum ákveðnum forsendum vegna breytinganna sem á henni hafa verið gerðar.


Endanlega lekastöðugleikakönnun verður gerð innan tíðar og tryggt að ferjan standist slíka prófun. Því verður ekkert því til fyrirstöðu af hinn nýji Sæfari fái haffærniskírteini og sigli milli Grímseyjar og lands.

Lesa meira
 

3.9.2007 : Greiðfærir og rannsakaðir vegir

Skýrslur

Nokkur umræða hefur orðið um fyrirhugaðan Lyngdalsheiðarveg eða Gjábakkaveg. Hin nýja veglína sem liggur sunnar en gamli vegurinn og um 100 metrum neðar í landslaginu hefur tvisvar farið í mat á umhverfissáhrifum og hefur niðurstaðan verið kærð til umhverfisráðherra.

Ráðherra úrskurðaði í maí mánuði síðastliðnum og heimilaði vegalagninguna með skilyrðum um rannsókn á loftaðborinni köfnunarefnismengun.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica