Fréttir

31.8.2007 : Drög að tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Bakkafjöruhöfn og Bakkahafnarveg

Bakkafjöruhöfn - Kort


Vegagerðin og Siglingastofnun Íslands kynna nú drög að tillögu að matsáætlun þar sem gerð er grein fyrir fyrirhugðum framkvæmdum við ferjuhöfn á Bakkafjöru og mannvirkjum því tengd.


Lesa meira

29.8.2007 : Rögnvaldur Jónsson fékk Svaninn

Jukka Hirvelä afhendir Rögnvaldi Svaninn

Svanurinn var afhentur Rögnvaldi í tengslum við stjórnarfund NVF, Norræna vegtæknisambandsins. Svaninn fékk hann fyrir hans mikla starf fyrir NVF og norrænt samstarf.


Rögnvaldur hóf störf hjá Vegagerðinni árið 1967 og var frá árinu 1995 framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs eða þar til hann lét af störfum í fyrrahaust.

Lesa meira

27.8.2007 : Athugasemd vegna leiðara Blaðsins

Á Hringvegi 1 við Hafravatn

Ólafur Þ. Stephensen skrifar leiðara í Blaðið föstudaginn 24. ágúst þar sem gætir nokkurs misskilnings hvað varðar bæði kostnað við lagningu 2+2 vegar og munarins á öryggi 2+2 vegar og 2+1 vegar.


Það kostar tvö- til þrefalt meira að leggja 2+2 veg eins og á Reykjanesbrautinni en að leggja 2+1 veg. Umferðaröryggi á þessum vegum er nákvæmlega það sama samkvæmt sænskri rannsókn.


Leiðari Blaðsins í hlaðvarpi

Lesa meira

24.8.2007 : Sundabraut - mat á umhverfisáhrifum - staða mála

Sundabraut göng

Athugasemdafrestur vegna draga að mati að umhverfisáhrifum vegna 1. áfanga Sundabrautar er runninn út og einnig athugasemdafrestur vegna matsáætlunar vegna 2. áfanga Sundabrautar. Í fyrra tilvikinu var um nýjar hugmyndir að ræða þ.e.a.s. göng og ný útfærsla á eyjalausn.


Fjöldi athugasemda barst og verður þeim komið til Skipulagsstofnunar sem vinnur áfram með málin.

Lesa meira

23.8.2007 : Athugasemd frá Vegagerðinni

Vegavinna í Mjóafirði

Um síðustu áramót var fjárhagsstaða Vegagerðarinna gagnvart ríkissjóði jákvæð um nærri 630 milljónir króna. Þar sem Vegagerðin er í bókhaldi ríkisins rekin á tveimur númerum hefur komið upp sá misskilningur að halli sé á rekstri Vegagerðarinnar. Svo er ekki.


Hinsvegar er hægt að finna halla á einstaka liðum og má þar nefna rekstur ferja en fjárveitingar til þess liðar hafa ekki fylgt aukinni þjónustu svo sem vegna fjölgunar ferða.

Lesa meira

15.8.2007 : Vegrifflur til að auka umferðaröryggi

Vegrifflur

Á Grindavíkurvegi standa nú yfir fræsingar í vegköntum. Þar er verið að fræsa vegrifflur sem ætlað er að vekja athygli ökumanna á því að þeir séu í þann veginn að keyra út af veginum. Um er að ræða rannsókn Vegagerðarinnar. Tilraunir hafa verið gerðar með upphleytar vegmerkingar en þær hafa ekki enst veturinn.


Rannsókninni lýkur næsta vor. Fræst verður á fjórum stöðum, bæði í köntum og einnig á miðlínu til að vara ökumenn við séu þeir á leið yfir á öfugan vegarhelming.


Tilgangurinn er að auka umferðaröryggi en erlendis hefur þessi lausn reynst mjög vel og slysum hefur fækkað verulega. Vegrifflur koma ekki í stað vegriða en gætu minnkað þörfina fyrir vegrið. Einnig getur reynst vel að fræsa vegrifflur meðfram vegriðum.

Lesa meira

14.8.2007 : Vegna greinargerðar um Grímseyjarferju

Grímseyjarferjan
Vegagerðin tekur ábendingar Ríkisendurskoðunar mjög alvarlega og mun hafa þær til hliðsjónar komi til þess að endurnýja þurfi ferju. Vegagerðin fagnar því að gera eigi stjórnsýsluútekt en bendir jafnframt á að nýlega var gerð slík úttekt á Vegagerðinni. Þá reiknar Vegargerðin með því að verkefnahópur sá sem samgönguráðherra hefur beðið Vegagerðina að mynda vinni hratt og örugglega þannig að Grímseyjarferjan komist sem fyrst í gagnið og verði mikil samgöngubót fyrir Grímseyinga. Lesa meira

14.8.2007 : Ríkisendurskoðun um Grímseyjarferju

Grímseyjarferjan

Ríkisendurskoðun hefur skilað af sér greinargerð um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferju. Í maí í vor óskaði Ríkisendurskoðun eftir öllum gögnum Vegagerðarinnar er vörðuðu kaup á nýrri Grímseyjarferju og endurbætur á henni. Fékk Ríkisensurskoðun einnig gögn frá samgöngu- og fjármálaráðuneytum og átti svo fundi með helstu aðilum málsins.


Markmiðið með greinargerðinni er að kanna hvernig undirbúnigi var háttað og hvort hann hafi verið fullnægjandi, hvers vegna kostnaður hafi farið fram úr áætlunum og hvaða lærdóm megi draga af málinu.
Greinargerð Ríkisendurskoðunar

Lesa meira

14.8.2007 : Óshlíðargöng -- forval

Óshlíðargöng - Skarfaskersleið
Fimm verktakar og verktakahópar hafa óskað eftir því að taka þátt í forvali vegna Óshlíðarganga. Það eru þessir:
- Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík og Marti Contractors Ltd., Sviss;
- Metrostav a.s., Tékkland og Háfell ehf., Reykjavík;
- Ístak hf., Reykjavík;
- Leonhard Nilsen & Sønner As., Noregur og Héraðsverk ehf., Egilsstaðir;
- Klæðning ehf., Hafnarfjörður Lesa meira

8.8.2007 : Stjórnarfundur Norræna vegtæknisambandsins

Frá stjórnarfundi Norræna vegtæknisambandsins

Norræna vegtæknisambandið NVF heldur stjórnarfund sinn í Reykjavík nú í ágúst. Norræna vegtæknisambandið er samstarfsvettvangur vegargerða Norðurlandanna og fyrirtækja í einkageiranum sem koma að vegagerð á einhver hátt. Á fjögurra ára fresti er haldin stór ráðstefna, Via Nordica, og verður hún næst haldin í Finnlandi að ári. Síðan verður ráðstefna haldin á Íslandi 2012 í hinu nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsi.

Lesa meira

3.8.2007 : Arðsemi -- forgangsröðun

Thverun Mjoafjardar

”Í forgangsröðun þar sem stjórnmálamenn þurfa að velja á milli ólíkra kosta þarf að taka tillit til mjög margra þátta sem hafa pólitískt eða efnahagslegt vægi og er greiningin eitt af þeim hjálpartækjum sem stjórnmálamenn geta stuðst við,” svo segir í skýrslu um forgangsröðun fjárfestinga í innviðum.


Skýrsluna má finna hér á vef Vegagerðarinnar en hún er seinni skýrsla af tveimur um arðsemi og forgangsröðun framkvæmda.”

Lesa meira




Útlit síðu: