Fréttir

31.7.2007 : Malbik endar -- ný skilti fyrir erlenda ferðamenn

Malbik endar - nýtt skilti

Ný skilti þar sem vakin er sérstök athygli erlendra ökumanna á því að senn ljúki bundnu slitlagi og við taki malarvegur verða sett upp á um 20 stöðum á þjóðvegakerfinu á næstu vikum.


Samgönguráðherra, vegamálastjóri og forstjóri Sjóvár afhjúpuðu eitt slíkt skilti í dag. Um er að ræða samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Sjóvár.

Lesa meira

27.7.2007 : Ekki göng til Eyja -- kraftur settur í Bakkafjöruhöfn

Herjólfur

Í ljósi skýrslu VST um jarðgöng til Vestmannaeyja ákvað ríkisstjórnin í dag föstudag að leggja áform um gerð jarðganga til Vestmannaeyja á hilluna en í stað þess að setja kraft í að ljúka gerð Bakkafjöruhafnar. Ástæða þessa er sú að í ljósi mikils kostnaðar við jarðgöng og mikillar jarðfræðilegrar óvissu eru göng ekki fýsileg.


Stefnt er að því að taka Bakkafjöruhöfnina í gagnið seint á árinu 2010. Einnig hefur samgönguráðherra og fjármálaráðherra samið við forstjóra Eimskips um að fjölga ferðum Herjólfs um 15 á árunum 2008 til 2010. Lesa meira

26.7.2007 : Norðfjarðarvegur um Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar - Drög að tillögu að matsáætlun

Nörðfjarðargöng - teikning

Vegagerðin kynnir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu. Byggja á jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og í tengslum við framkvæmdina verða nýir vegir byggðir, beggja vegna gangnamunnanna.


Framkvæmdin er alls um 16 km löng og nær frá Norðfjarðarvegi, sunnan Eskifjarðar, að núverandi Norðfjarðarvegi norðan Norðfjarðarár í Norðfirði. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austfjörðum og styrkja byggðarlög á Austurlandi.

Lesa meira

26.7.2007 : Göng til Vestmannaeyja kosta 50 til 80 milljarða króna

Vestmannaeyjar

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil.


Fjallað verður um skýrsluna á fundi ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag og í framhaldi af því verður hún gerð opinber.

Lesa meira

23.7.2007 : Athugasemd við frétt

Herjólfur

Á laugardaginn 21. júlí sl birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem því var haldið fram að bæjaryfirvöld hafi ekki enn fengið svör við hvernig staðið verði að næturferðum Herjólfs um verslunarmannahelgina.


Þetta stenst ekki skoðun því þegar í byrjun júlí hafði Eimskip auglýst þrjár viðbótarferðir í kringum verslunarmannahelgina og með því eru núna ákveðnar fimm næturferðir Herjólfs á þessum tíma. Á fimmtudaginn óskaði bæjarstjóri Vestmannaeyja eftir tveimur ferðum til viðbótar, en ekki verður betur séð en að önnur ferðin sé nú þegar ákveðin.

Lesa meira

19.7.2007 : Umferðarkönnun Öxnadalsheiði

Umferðarkönnun

Vegagerðin mun standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði, fimmtudaginn 19. júlí og laugardaginn 21. júlí 2007. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli staða og munu niðurstöður m.a. nýtast við áætlanagerð.

Lesa meira

13.7.2007 : Stórátak í vegagerð, flýtingin fyrir 6,5 milljarða króna

Brúarmynd
Vegna nokkurrar umfjöllunar fjölmiðla um þau ummæli aðstoðarvegamálastjóra í morgunfréttum Útvarpsins á fimmtudaginn síðastliðinn um að ekki væri hægt að tryggja það að öll verk sem ætlað er að flýta verði lokið á ætluðum tíma er rétt að árétta að:


Mikið álag hefur verið á ráðgjafastofum á undanförnum árum og hefur af þeim sökum undirbúningur verka stundum dregist lengur en Vegagerðin hefði kosið. Nú virðast hins vegar vera teikn á lofti um að draga sé úr þenslunni og væntum við vegagerðarmenn því þess að unnt verði að sinna okkur í auknum mæli.


Tilraunir hafa verið gerðar til þess, einkum í fyrirsögnum fjölmiðla, að túlka framangreind ummæli svo, að samgönguráðherra og ríkisstjórnin hafi verið að lofa framkvæmdum sem ekki sé unnt að standa við. Því fer fjarri. Allar upplýsingar og forsendur, sem ríkisstjórnin byggði ákvörðun sína á, svo sem um mögulegan upphafstíma framkvæmda, verklengd og verklok, komu frá Vegagerðinni.


Að sjálfsögðu hefur Vegagerðin fulla trú á því, að þær áætlanir, sem hún setti þar fram standist, m.a. að unnt verði að bjóða út a.m.k. helming framkvæmdanna innan hálfs árs, þótt varnagli sé sleginn.

Lesa meira

12.7.2007 : Umhverfisskýrsla Vegagerðarinnar fyrir 2006 komin út

Vesturós Héraðsvatna 2006

Vegagerðin vill geta metið og lágmarkað umhverfisáhrif starfseminnar og metið árangur af umhverfisstarfi, aukið umhverfisvitund starfsmanna og stuðlað að betri nýtingu hráefna.


Til þess að það megi takast hefur Vegagerðin vaktað helstu umhverfisþætti í starfseminni og fært í grænt bókhald. Vegagerðinni er þó ekki skylt að færa grænt bókhald skv. lögum.

 


Á þessu ári eru liðin tíu ár síðan fyrst var samþykkt formleg stefna í umhverfismálum hjá Vegagerðinni. Fimm árum áður hafði verið skipaður sérstakur vinnuhópur um umhverfismál og má raunar fullyrða að löngu fyrr hafi vegagerðarmenn verið meðvitaðir um að umgangast bæri umhverfið með virðingu.

Lesa meira

10.7.2007 : Tvenn göng 2012, vegagerð fyrir 6,5 milljarða króna flýtt

Framkvæmdum sem flýtt verður

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að flýta framkvæmdum í vegagerð á 11 stöðum á landinu fyrir alls 6,5 milljarða króna umfram það sem þegar hefur verið ákveðið.


Um er meðal annars að ræða tvenn jarðgöng, göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum annarsvegar og hinsvegar ný göng til Norðfjarðar fyrir austan. Þá er gert ráð fyrir því að flýta Suðurstrandarvegi, ljúka Fróðárheiði og byggja Dettifossveg svo dæmi séu tekin.


Þá er ný vegagerð einnig áætluð en það er vegur um Öxi.

Lesa meira

9.7.2007 : Umferð á þjóðvegum 2006

Umferð - hringtorg

Umferð á þjóðvegum landsins jókst um sex prósent milli áranna 2005 og 2006. Í heild voru eknir 2121 milljón kílómetrar í fyrra. Stærri hluti umferðarinnar er í dreifbýli eða 57 prósent en rúm 36 prósent á þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

5.7.2007 : Drög að tillögu um matsáætlun vegna Sundabrautar

Sundabraut göng

Unnin hafa verið drög að tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 1. áfanga Sundabrautar. Um er að ræða nýjan kost, jarðgöng og breytingu á leið III, Eyjalausn.


Áður hefur verið gerð matsskýrsla vegna þriggja kosta þ.e.a.s. hábrúar, botnganga á leið I og Eyjalausnar á leið III. Til 10. ágúst næstkomandi gefst fólki kostur á að senda inn athugasemdir við tillöguna en að því loknu verða drögin og athugasemdir sendar Skipulagsstofnun til umfjöllunar.

Lesa meira

4.7.2007 : Þvottur vegna blæðinga

Einbreið brú

Það er eðlilegt að vegfarendur komist leiðar sinnar áfallalaust en það er ekki hægt að tryggja að menn komist alla leið án þess að skíta út bíla sína.


Blæðingar sem áttu sér stað við eftir lagningu klæðingar fyrir norðan Akureyri á dögunum voru meiri en svo að hægt sé að sætta sig við þær. Þess vegna var vegfarendum bættur skaðinn en Vegagerðin fer nú yfir verkferlið vegna þess atviks.

Lesa meira

3.7.2007 : Helmingur banaslysa í fyrra vegna hraðaksturs eða aksturs undir áhrifum

Af slysavettvangi
Helminginn eða 14 af 28 banaslysum í umferðinni í fyrra má rekja fyrst og fremst til hraðakstur eða ölvunarakstur og/eða fíkniefnanotkunar, samkvæmt nýútkominni skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Lesa meira

2.7.2007 : EuroRAP gæða og öryggiskönnun íslenskra vega

Skrifað undir
Í dag, 2. júlí, skrifuðu fulltrúar Umferðarstofu og FÍB undir samning um gæða- og öryggiskönnun íslenskra vega undir merkjum EuroRAP. Umferðarstofa styrkir verkefnið fyir hönd Samgönguráðuneytisins en FÍB sér um framkvæmdina. Lesa meira



Útlit síðu: