Fréttir

27.12.2007 : Hvað er menntaskóli, hvenær er skólatími?

Snjómokstur á Hellisheiði

Að gefnu tilefni er áréttað að túlkun Vegagerðarinnar er sú að menntaskóli sé orð yfir framhaldsskóla, þ.e. næsta stig menntakerfis á eftir grunnskóla og eru þá meðtaldir fjölbrautaskólar, Verslunarskólinn, Kvennaskólinn, verkmenntaskólar og iðnskólar.


Einnig að grunnskólar og framhaldsskólar standa venjulega yfir frá lok ágústmánuðar og til loka maímánaðar og er átt við það tímabil og alla daga vikunnar en ekki einungis virka daga vikunnar á því tímabili.


Ástæða áréttingarinnar er athugasemd sem menntamálaráðuneytið fékk vegna framkvæmdar á samningi um sérleyfisakstur á Suðurlandi.

Lesa meira

22.12.2007 : Þjónusta um hátíðirnar

Vetrarfærð

Þjónusta Vegagerðarinnar yfir jólahátíðina verður sem hér segir:

Á öllum leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á jóla- og nýársdag, en stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar fyrir kl. 10:00.

 

Á aðfangadag og gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl 14:00 en ef þörf krefur til kl 17:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur og Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.

 

Á annan í jólum verður þjónusta á öllum leiðum samkvæmt almennum snjómokstursreglum.

 

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá upplýsingaþjónustu Vegagerðarinnar.

 

Vegagerðin óskar landsmönnum gleðilegra jóla

Lesa meira

21.12.2007 : Mislæg gatnamót á Hringvegi við Leirvogstungu

Leirvogstunga

Vegagerðin, og landeigendurnir Leirvogstunga ehf. og Ístak ehf. hafa samið um þverun Hringvegarins (Vesturlandsvegar) með mislægum gatnamótum á milli Leirvogstungu og Tungumela og tengingar við Vesturlandsveginn.


Samningurinn felur það í sér að Vegagerðin samþykkir óskir landeigenda um tilteknar breytingar á Vesturlandsvegi og tengingar við hann. Vesturlandsvegi verður breytt á um 650 m kafla, og mislægt hringtorg byggt með að- og fráreinum sem tengjast munu gatnakerfi beggja vegna vegarins ásamt tveimur brúm yfir Hringveg.

Lesa meira

20.12.2007 : Starfsmenn Vegagerðarinnar styrkja SKB

Óskar Örn Guðbrandsson tekur við styrknum

Starfsmenn á stjórnsýslusviði Vegagerðarinnar tóku allir þátt í vinnustaðagreiningu Capacents Gallups og hlutu þess vegna 100 þúsund krónur í verðlaun rétt eins og starfsmenn þróunarsviðs. (Sjá eldri fréttir.) Starfsmennirnir ákváðu að gefa féð til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.


Óskar Örn Guðbrandsson framkvæmdastjóri SKB tók við styrknum í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær miðvikudag 19. desember. SKB var stofnað 2. september 1991 af foreldrum barna með krabbamein. Félagið er ekki rekið í ágóðaskyni en starfar fyrst og fremst sem sjálfshjálparhópur fjölskyldna barna sem fengið hafa krabbamein.

Lesa meira

18.12.2007 : Ótryggilega gengið frá farmi

Jarðvegsslóði á Hafravatnsvegi

Allt of algengt er að illa sé gengið frá farmi á vörubílum við framkvæmdir hvers konar. Brýnt er að menn taki sig á í þeim efnum.


Vegagerðarmaður var á ferð á dögunum á Hafravatnsvegi og fann langa slóð á veginum af efni sem betur hefði haldist á vörubílspallinum. Þetta er því miður ekkert einsdæmi. 

Lesa meira

17.12.2007 : Umhyggja fær 100 þúsund krónur

Framkvæmdastjóri Umhyggju tekur við styrknum

Á árlegum jólafundi þróunarsviðs Vegagerðarinnar færðu starfsmenn sviðsins Umhyggju, sem er félag til stuðnings langveikum börnum, 100 þúsund krónur. Þróunarsviðið hafði fengið þær krónur í vinning vegna góðrar þátttöku í vinnustaðagreiningu hjá Vegagerðinni.


Stjórnsýslusviðið hlaut samskonar vinning en Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna mun fljótlega fá hann afhentan.

Lesa meira

14.12.2007 : Reynslusigling gekk vel

Sæfari

Nú er að ljúka þeim endurbótum sem Vélsmiðja Orms og Víglundar hefur unnið að á Grímseyjarferjunni Sæfara. Einn lokahnykkurinn í því ferli er reynslusigling sem farin var í gær 13. desember.


Tilgangurinn með reynslusiglingunni er að prufukeyra vélar skipsins. Siglingin tókst vel í gær og ekkert óvænt kom uppá.


Skipið lætur vel að stjórn og er lipurt að mati Jóns B. Björgvinssonar skipstjóra í ferðinni.

Lesa meira

13.12.2007 : Greið umferð – örugg umferð

Gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar - Lausn með brú

Það eru til einfaldar lausnir til að leysa vanda í umferðinni og það eru til flóknar lausnir. Yfirleitt vita menn hvar vandamálin eru en sjá ekki alltaf lausnirnar í hendi sér. Eitt vandamál í Reykjavík er tiltölulega auðvelt að leysa en það er stíflan sem myndast við gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.


Gatnamótin hafa nokkuð verið í umræðunni þar sem Reykjavíkurborg hefur hafnað þeim tillögum sem lagðar hafa verið fram. Til að greiða fyrir umferðinni á þessum stað eru mislæg gatnamót góð lausn og miðað við þær hugmyndir sem lagðar hafa verið fram er ekki um mikið inngrip að ræða.

Lesa meira

11.12.2007 : Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri lætur af störfum 1. mars

Jón Rögnvaldsson

Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri hefur ákveðið að láta af störfum 1. mars næstkomandi.


Þá lýkur fimm ára ráðningartímabili hans sem vegamálastjóra. Hann hefur þegar tilkynnt samgönguráðherra ákvörðun sína.


Jón telur heppilegt að láta af störfum á þessum tímapunkti, eftir ríflega 43 ára samfellt starf hjá Vegagerðinni. Jón verður þá orðinn 69 ára gamall.

Lesa meira

4.12.2007 : Leiðbeiningar Vegagerðarinnar: Vegir og skipulag

Vegir og skipulag - forsíða leiðbeinngarrits

Vegagerðin hefur nú gefið út nýjar leiðbeiningar sem bera nafnið: Vegir og skipulag - Leiðbeiningar Vegagerðarinnar fyrir sveitarfélög og skipulagshöfunda. Leiðbeiningarnar voru unnar af VSÓ Ráðgjöf í samvinnu við Vegagerðina.


Með leiðbeiningarriti fyrir skipulagshöfunda leggur Vegagerðin sitt af mörkum til að stuðla að skilvirku samráðsferli.

Lesa meira

30.11.2007 : Ný vegalög taka gildi um áramót

Á hringveginum

Þegar ný vegalög taka gildi um áramót falla úr gildi eldri lög nr. 45/1994. Markmið laganna er að setja reglur um vegi og veghald sem stuðla að greiðum og öruggum samgöngum.


Ýmsar breytingar verða við gildistöku laganna. Fram hefur komið að hluti þeirra vega sem Vegagerðin hefur verið veghaldari fyrir fer til sveitarfélaganna. En einnig verður samkvæmt nýju lögunum strafrækt deild sem heyrir beint undir vegamálastjóra sem sjá mun um innra eftirlit með veghaldi Vegagerðarinnar. Einnig er lögð aukin áhersla á samráð um skipulag svo fátt eitt sé nefnt.

Lesa meira

28.11.2007 : Flughálka eða hálkublettir - mismunandi þjónusta Vegagerðarinnar

Vetrarfærð

Það vill brenna við þegar Vetur konungur heldur innreið sína að Íslendingar séu svolítið óviðbúnir. Þá reynir gjarnan á aksturshæfileikana en því miður duga þeir ekki alltaf til.


Vegagerðin kannar ástand vega og kemur þeim upplýsingum til almennings, þ.e.a.s. hvort greiðfært sé, hálkublettir eða flughálka svo dæmi séu tekin. Þetta þekkja flestir en hinsvegar vita ef til vill færri að þjónustustig Vegagerðarinnar eru mörg og mismunandi.

Lesa meira

23.11.2007 : Ökuhraði minnkar umtalsvert

Umferð

Greinilegt er samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar að ökuhraði á þjóðvegunum er að minnka. Mælt hefur verið síðan árið 2004 og sumarið 2007 lækka tölurnar umtalsvert í fyrsta sinn. Hraðinn er jafnari en árin á undan og ljóst að mest dregur úr hraða þeirra sem aka hraðast.


Líklega má rekja þessa breytingu til öflugra eftirlits lögreglu, sjálfvirkra hraðamyndavéla og hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot.

Lesa meira

22.11.2007 : Stefnumótun í samgöngum

Frá fundi Samgönguráðs 21. nóv.

Samgönguráð hélt í gær fjórða fund sinn um stefnumótun í samgöngum. Umfjöllunarefnið að þessu sinni var: Samgöngur og umhverfi.


Matthildur Bára Stefánsdóttir hjá Vegagerðinni fjallaði um það hvað gert er hjá Vegagerðinni til að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda og mengun. Jón Bernódusson hjá Siglingamálastofnun talaði um möguleika á að nota repju til að koma í stað olíu á skip og Sveinn V. Ólafsson hjá Flugmálastjórn talaði um nýja reglur í Evrópu sem kveða á um mikla minnkun losunar gróurhúsalofttegunda í fluginu, nái þær fram að ganga. Lesa meira

20.11.2007 : Vinna hafin við Hófaskarðsleið

Hófaskarðsleið

Framkvæmdir eru hafnar við Hófaskarðsleið eða Norðausturveg en áætluð verklok eru í nóvember 2009.


Tilgangur framkvæmdarinnar er að styrkja samgöngur milli byggðakjarna á Norðausturlandi, að auka umferðaröryggi og stuðla að greiðari samgöngum á svæðinu með því að leggja veg með hönnunarhraða 90 km/klst.


Jafnframt að lágmarka akstursfjarlægð á milli þéttbýliskjarna og stuðla þannig að myndun eins þjónustusvæðis sem nær til Kópaskers, Raufarhafnar og Þórshafnar. Almennt verður nýr vegur öruggari og greiðfærari en núverandi vegur, auk þess sem hann kemur til með að stytta vegalengdir verulega milli þéttbýlisstaða.

Lesa meira

19.11.2007 : Ótti við 2+1 veg ástæðulaus

Frá uppsetningu vegriðs á 2+1 veginum í Svínahrauni

Staðreyndin er að 2+1 vegur með aðskildum akstursstefnum er með öruggustum vegum sem byggðir eru og algjörlega ástæðulaust að óttast slíkan veg. Einungis 2+2 vegur með vegriðum beggja vegna er öruggari samkvæmt rannsóknum sænsku vegagerðarinnar.


24 stundir halda því fram í blaðinu á fimmtudag að Norðmenn séu hræddir við 2+1 veg. Þar var greinilega verið að fjalla um veg án vegriðs til að aðskilja akreinarnar. Það er ekki hægt að bera saman öryggi á slíkum vegi og þeim 2+1 vegum sem menn hafa hugmyndir um að byggja hér á landi.

Lesa meira

14.11.2007 : Erindi frá rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar komin á vefinn

Ráðstefnugestir í kaffihléi

Yfir 150 manns sóttu 6. ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem haldin var á Hilton Hotel Nordica þann 2. nóvember síðastliðinn.


Fyrirlestrarnir eru nú aðgengilegir hér á netinu .....


Lesa meira

13.11.2007 : Hallsvegur, Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg - Drög að tillögu að matsáætlun

Hallsvegur - Úlfarfellsvegur

Frestur vegna athugasemda við drög að tillögu til matsáætlunar vegna mislægra gatnamóta við Hallsveg, Úlfarfellsveg og Vesturlandsveg hefur verið framlengdur til 19. nóvember.

Sjá fyrri tilkynningu.

Lesa meira

7.11.2007 : Norðfjarðarvegur um Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar -Tillaga að matsáætlun

Norðfjarðargöng - Yfirlitsmynd

Vegagerðin kynnir hér með tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu.

Lesa meira

6.11.2007 : Ljósastaurar og vegrið

Brotljósastaur

Vegna fréttar í Ríkisútvarpinu í dag um ljósastaura og vegrið er rétt að benda á eftirfarandi:


Hjá Vegagerðinni hafa menn gert sér grein fyrir stöðu ljósastauranna á Reykjanesbraut og Vesturlandsvegi sem menn á vegum EuroRapverkefnisins hafa gert athugasemdir við. Frá því í sumar hefur verið í gangi vinna við að yfirfara ástandið. Hersla á boltum í svoköll­uð­­um brotstaurum reyndist ekki rétt og hefur það verið lagfært víða og unnið er að því að ljúka þeirri vinnu.

Lesa meira

3.11.2007 : Vel heppnuð ráðstefna um rannsóknir

Hluti ráðstefnugesta

6. ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar var haldin 2. nóvember og sóttu hana meira en 150 manns. 20 erindi um rannsóknir sem Vegagerðin styrkir eða tekur þátt í voru haldin og komust færri að en vildu.


Samkvæmt lögum rennur 1 prósent af mörkuðum tekjum Vegagerðarinnar til rannsókna og með nýjum lögum sem taka gildi um áramót hækkar þetta framlag í 1,5 prósent.


Þetta hjálpar því undanfarið hefur verið sótt um styrk til rannsókna fyrir helmingi meira fé en til ráðstöfunar er.

Lesa meira

29.10.2007 : Hallsvegur, Úlfarsfellsvegur og mislæg gatnamót við Vesturlandsveg - Drög að tillögu að matsáætlun

Hallsvegur - Úlfarfellsvegur

Vegagerðin og Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar kynna hér drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við mislæg gatnamót við Vesturlandsveg, Hallsveg og Úlfarfellsveg.

Tilgangur framkvæmdarinnar er að tengja Grafarvogshverfi ásamt hverfunum í Hamrahlíðum og Úlfarsárdal við Vesturlandsveg og tengja hverfin innbyrðis. Lesa meira

25.10.2007 : Ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar - skráningu lýkur 30. október

Ráðstefnan um rannsóknir Vegagerðarinnar 2007

Ráðstefna um rannsóknir Vegagerðarinnar – skráningu lýkur 30. október. Nú styttist í ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem verður haldin á Hótel Nordica föstudaginn 2. nóvember næstkomandi (sjá frétt frá 1/10/2007).


Lokafrestur til að skrá sig á ráðstefnuna er 30. október.

Lesa meira

23.10.2007 : Grímseyjarferjan: Góður gangur

Fjoririferjunni

Góður gangur er þessa dagana í endurbótum Grímseyjarferjunnar nýju. Reiknað er með að endurbótum hjá skipasmíðastöðinni Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfirði ljúki eftir um það bil mánuð eða í lok nóvember og að ferjan verði til reiðu öðru hvoru megin við áramótin.


Þriðjudag fundaði verkefnisstjórn framkvæmdanna með fulltrúum frá Öryrkjabandalaginu og einnig með fulltrúum Grímseyinga. Voru þetta gagnlegir fundir báðið tveir.

Lesa meira

18.10.2007 : Vel heppnaður fundur með verktökum

Búkolla

Ríflega 20 verktakar hvaðanæva að af landinu mættu á ráðgjarfarnefndarfund Vegagerðarinnar og verktaka í Borgartúni 7 á miðvikudag. Á fundinum skiptust menn opið á hugmyndum og ræddu hlutina vítt og breitt.


Þetta er fyrsti fundurinn en framhald verður á og ætlunin að slíkir fundir verði haldnir reglulega héðan í frá.

Lesa meira

16.10.2007 : Óánægja og ánægja

Flutningar eru margvíslegir

Í viðhorfskönnun sem Lausnir hafa unnið fyrir Vegagerðina kemur fram að óánægja flutningsaðila með vegakerfið á Íslandi vex heldur frá síðustu könnun en hinsvegar eykst ánægja verktaka með samskiptin við starfsmenn Vegagerðarinnar í útboðsmálum.


Lausnir vinna slíka könnun árlega þar sem talað er við 50 aðila, 25 úr hópi verktaka og 25 úr hópi flutningsaðila. Nú í ár fór könnunin fram í september.

Lesa meira

12.10.2007 : Samið um áætlunarflug til Vestmannaeyja

Samningur handsalaður að lokinni undirskrift

Vegamálastjóri og forstjóri Flugfélag Íslands skrifuðu undir samning um áætlunarflug á flugleiðinni Reykjavík – Vestmannaeyjar – Reykjavík föstudaginn 12. október. Samningurinn er tilkomin að undangegnu útboði.


Samkvæmt því mun Flugfélag Íslands á lágmarki fljúga tvær ferðir til Vestmannaeyja og til baka til Reykjavíkur á dag á tímabilinu 1. október til 31. maí og þrjár ferðir á dag á tímabilinu 1. júní til 30. september.

Lesa meira

10.10.2007 : Umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði

Frá umferðarkönnuninni í sumar

Vegagerðin áætlar að standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði, fimmtudaginn 11. október og laugardaginn 13. október 2007. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Rétt er þó að geta þess að ef veðurspá verður óhagstæð gæti könnunin frestast um viku.


Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli einstakra staða og og svæða. Niðurstöður munu m.a. nýtast við áætlanagerð.

Lesa meira

4.10.2007 : Flestir vilja breiðari vegi

Þróun svara síðan 2002 - graf

Í könnun sem kem Capacent Gallup vann fyrir Vegagerðina um viðhorf almennings til þjóðvegakerfins í sumar kom fram að langflestir vilja sjá breikkun vega eða ríflega 60 prósent. Næst nefna menn meira bundið slitlag.


Gallup vann þessa könnun í sumar, en könnun af þessu tagi fer fram tvisvar á ári.

Lesa meira

3.10.2007 : Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og efnistöku

Bakkafjöruhöfn - Kort

Tillaga að matsáætlun fyrir byggingu Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar (254) og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum er nú til umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun.


Frestur til að skila inn athugasemdum við tillögu að matsáætlun til Skipulagsstofnunar er 19. október 2007.

Lesa meira

2.10.2007 : Ríkinu og Vegagerðinni stefnt vegna Vestfjarðavegar

Leid B 2. áfangi

Eigendur tveggja jarða í Þorskafirði, Fuglaverndarfélag Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands hafa stefnt Íslenska ríkinu og Vegagerðinni vegna úrskurðar fyrrverandi umhverfisráðherra sem heimilaði leið B í 2. áfanga Vestfjarðavegar.


Um er að ræða nýjan veg um Teigsskóg og þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Úrskurður umhverfisráðherra féll 5. janúar síðastliðinn.

Lesa meira

1.10.2007 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2007 auglýst

Rannsóknarráðstefna 2007

Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 2. nóvember 2007 á Hótel Nordica.

Meginmarkmið með rannsóknum og þróun hjá Vegagerðinni er að skapa nýja þekkingu og afla nýrra gagna, þannig að íslenska vegakerfið geti orðið skilvirkara, öruggara og hagkvæmara í byggingu og rekstri og veita betri þjónustu við vegfarendur með auknu umferðaröryggi.

Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar er ætlað að koma á framfæri niðurstöðum rannsókna sem styðja þessi markmið og hafa hlotið styrki úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Lesa meira

28.9.2007 : Framtíðin felst í aukinni þjónustu

Frá íslenska básnum á PIARC

Þörfin fyrir upplýsingar um vegakerfið eykst sífellt. Upplýsingarnar þurfa að berast jafnóðum og helst þannig að hægt verði að spá fyrir um ástand vegar fram í tímann.


Á PIARC sýningunni í París í síðustu viku kynnti Vegagerðin ásamt verkfræðistofunum Samrás og Samsýn og ND á Íslandi framtíðarsýn í þessum efnum.


Málið snýst um að safna sem mestum upplýsingum um vegakerfið, um veður, færð, umferð og svo framvegis á einn stað og vinna þar upplýsingar sem nýtast vegfarendum.

Lesa meira

27.9.2007 : Skipulagsstofnun fellst á tillögu Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar að matsáætlun vegna 2. áfanga Sundabrautar

Sundabraut 2. áfangi, valkostir

Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar kemur fram að í umsögnum Reykjavíkurborgar, Byggðastofnunar, veiðimálastjórnar Landbúnaðarstofnunar, Siglingastofnunar Íslands og Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar eru ekki gerðar athugasemdir við efni tillögu að matsáætlun.


Fallist er á tillöguna með athugasemdum en um er að ræða Sundabraut frá Gufunesi að tengingu við Vesturlandsveg.

Lesa meira

25.9.2007 : 4000 vegagerðarmenn hittust á PIARC

Íslenski básinn á PIARC

Fyrsta alþjóða vegaráðstefnan var haldin árið 1908 og árið eftir var alþjóða vegamálasambandið PIARC stofnað.


Tilgangurinn með sambandinu var og er að þróa alþjóðlega samvinnu og styðja við framþróun í samgöngum á öllum sviðum.


23. ráðstefnan var haldin í París í síðustu viku. Hana sóttu um 4000 vegagerðarmenn allsstaðar að úr heiminum. Vegagerðin ásamt verkfræðistofunum Samrás og Samsýn og ND á Íslandi voru með bás á sýningunni og kynntu margir sér framtíðarsýnina sem þar var kynnt.

Lesa meira

18.9.2007 : Vegagerðin og Roadex efna til ráðstefnu um umferðalitla vegi á norðurslóðum

Roadex logo

Roadex verkefnið fjallar um gerð, uppbyggingu og rekstur fáfarinna vega á norðurjaðarsvæðum Evrópu.


Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 21. september 9:00 – 16:00 á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.


Lesa meira

17.9.2007 : Gjaldtaka í þágu umhverfisins

Íslenski básinn á PIARC

60 samgönguráðherra frá 50 löndum komu saman á opnunardegi 23. Piarc ráðstefnunnar í París á mánudag og ræddu um gjaldtöku vegna notkunar á vegum. Nokkur samhljómur var um nauðsyn þess að taka gjaldtöku í auknum mæli til að draga úr umferðartöfum og minnka mengun.


Piarc-ráðstefnan er haldin fjórða hvert ár af Alþjóða vegamálasambandinu (World Raod Association).


Vegagerðin ásamt samstarfsaðilum er með kynningarbás á ráðstefnunni þar sem kynnt er framtíðarsýn um samþættingu upplýsingarkerfa til auka öryggi og bæta þjónustu við vegfarendur.

Lesa meira

13.9.2007 : Vanda ber merkingar

Merkingum áfátt og þær rangar

Það verður ekki of brýnt fyrir verktökum að merkja vel vinnusvæðin. Á myndinni sem fylgir þessari frétt sést að ekki nóg með að illa sé merkt heldur vísar örin á skiltinu umferðinni á vinnusvæðið en ekki framhjá því.


Lögreglan stöðvaði þessar framkvæmdir þar sem gröfustjórinn neitaði að bæta úr merkingunum.

Lesa meira

12.9.2007 : Vel merktir Vegagerðarmenn

merking bíla 1

Nýlega var samþykkt innan Vegagerðarinnar að starfsmenn sem nota einkabíla sína fyrir Vegagerðina skuli merkja bílana.


Þannig eiga allir Vegagerðarbílar að vera merktir með merki Vegagerðarinnar og einnig með blikkljósi. Starfsmenn við vinnu eiga einnig að vera í endurskinsvestum.

Lesa meira

7.9.2007 : Nýtt hringtorg við Þingvallaveg

Hringtorgið á Vesturlandsvegi

Vinnu við hringtorgið á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallaafleggjara lauk í dag og er umferð nú komin á báðar akreinar torgsins.


Vinnan gekk mjög vel og voru verktakarnir, Ístak nokkuð á undan áætlun en verklok áttu að vera 11. september. Almenn ánægja er hvorttveggja með vinnubrögðin á meðan á framkvæmdinni stóð og með verkið sjálft.

Lesa meira

6.9.2007 : Ekki er öll vitleysan eins

Grímseyjarferjan

"Nýja Grímseyjarferjan sem nú liggur í Hafnarfjarðarhöfn verður auk þess mun betra skip, hraðskreiðara, hagkvæmara og aðstaða fyrir farþega mun betri. Miklu munar fyrir Grímseyinga að stytta siglingatímann um eina klukkustund."


Úr grein sem birtist í Fréttablaðinu og Blaðinu í dag 6. september. Lesa má alla greinina með því að smella á "Lesa meira".

Lesa meira

4.9.2007 : Engin óvissa um að Grímseyjarferja muni sigla

Grímseyjarferjan

Í Blaðinu 4. september er ýjað að því að hugsanlega standist hin nýja Grímseyjarferja ekki reglugerðir og ákvæði Evróputilskipunar um farþegasiglingar.


Ferjan hefur staðist lekastöðugleikakannanir og stenst slíkan stöðugleika núna -- að gefnum ákveðnum forsendum vegna breytinganna sem á henni hafa verið gerðar.


Endanlega lekastöðugleikakönnun verður gerð innan tíðar og tryggt að ferjan standist slíka prófun. Því verður ekkert því til fyrirstöðu af hinn nýji Sæfari fái haffærniskírteini og sigli milli Grímseyjar og lands.

Lesa meira

3.9.2007 : Greiðfærir og rannsakaðir vegir

Skýrslur

Nokkur umræða hefur orðið um fyrirhugaðan Lyngdalsheiðarveg eða Gjábakkaveg. Hin nýja veglína sem liggur sunnar en gamli vegurinn og um 100 metrum neðar í landslaginu hefur tvisvar farið í mat á umhverfissáhrifum og hefur niðurstaðan verið kærð til umhverfisráðherra.

Ráðherra úrskurðaði í maí mánuði síðastliðnum og heimilaði vegalagninguna með skilyrðum um rannsókn á loftaðborinni köfnunarefnismengun.

Lesa meira

31.8.2007 : Drög að tillögu að matsáætlun vegna framkvæmda við Bakkafjöruhöfn og Bakkahafnarveg

Bakkafjöruhöfn - Kort


Vegagerðin og Siglingastofnun Íslands kynna nú drög að tillögu að matsáætlun þar sem gerð er grein fyrir fyrirhugðum framkvæmdum við ferjuhöfn á Bakkafjöru og mannvirkjum því tengd.


Lesa meira

29.8.2007 : Rögnvaldur Jónsson fékk Svaninn

Jukka Hirvelä afhendir Rögnvaldi Svaninn

Svanurinn var afhentur Rögnvaldi í tengslum við stjórnarfund NVF, Norræna vegtæknisambandsins. Svaninn fékk hann fyrir hans mikla starf fyrir NVF og norrænt samstarf.


Rögnvaldur hóf störf hjá Vegagerðinni árið 1967 og var frá árinu 1995 framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs eða þar til hann lét af störfum í fyrrahaust.

Lesa meira

27.8.2007 : Athugasemd vegna leiðara Blaðsins

Á Hringvegi 1 við Hafravatn

Ólafur Þ. Stephensen skrifar leiðara í Blaðið föstudaginn 24. ágúst þar sem gætir nokkurs misskilnings hvað varðar bæði kostnað við lagningu 2+2 vegar og munarins á öryggi 2+2 vegar og 2+1 vegar.


Það kostar tvö- til þrefalt meira að leggja 2+2 veg eins og á Reykjanesbrautinni en að leggja 2+1 veg. Umferðaröryggi á þessum vegum er nákvæmlega það sama samkvæmt sænskri rannsókn.


Leiðari Blaðsins í hlaðvarpi

Lesa meira

24.8.2007 : Sundabraut - mat á umhverfisáhrifum - staða mála

Sundabraut göng

Athugasemdafrestur vegna draga að mati að umhverfisáhrifum vegna 1. áfanga Sundabrautar er runninn út og einnig athugasemdafrestur vegna matsáætlunar vegna 2. áfanga Sundabrautar. Í fyrra tilvikinu var um nýjar hugmyndir að ræða þ.e.a.s. göng og ný útfærsla á eyjalausn.


Fjöldi athugasemda barst og verður þeim komið til Skipulagsstofnunar sem vinnur áfram með málin.

Lesa meira

23.8.2007 : Athugasemd frá Vegagerðinni

Vegavinna í Mjóafirði

Um síðustu áramót var fjárhagsstaða Vegagerðarinna gagnvart ríkissjóði jákvæð um nærri 630 milljónir króna. Þar sem Vegagerðin er í bókhaldi ríkisins rekin á tveimur númerum hefur komið upp sá misskilningur að halli sé á rekstri Vegagerðarinnar. Svo er ekki.


Hinsvegar er hægt að finna halla á einstaka liðum og má þar nefna rekstur ferja en fjárveitingar til þess liðar hafa ekki fylgt aukinni þjónustu svo sem vegna fjölgunar ferða.

Lesa meira

15.8.2007 : Vegrifflur til að auka umferðaröryggi

Vegrifflur

Á Grindavíkurvegi standa nú yfir fræsingar í vegköntum. Þar er verið að fræsa vegrifflur sem ætlað er að vekja athygli ökumanna á því að þeir séu í þann veginn að keyra út af veginum. Um er að ræða rannsókn Vegagerðarinnar. Tilraunir hafa verið gerðar með upphleytar vegmerkingar en þær hafa ekki enst veturinn.


Rannsókninni lýkur næsta vor. Fræst verður á fjórum stöðum, bæði í köntum og einnig á miðlínu til að vara ökumenn við séu þeir á leið yfir á öfugan vegarhelming.


Tilgangurinn er að auka umferðaröryggi en erlendis hefur þessi lausn reynst mjög vel og slysum hefur fækkað verulega. Vegrifflur koma ekki í stað vegriða en gætu minnkað þörfina fyrir vegrið. Einnig getur reynst vel að fræsa vegrifflur meðfram vegriðum.

Lesa meira

14.8.2007 : Vegna greinargerðar um Grímseyjarferju

Grímseyjarferjan
Vegagerðin tekur ábendingar Ríkisendurskoðunar mjög alvarlega og mun hafa þær til hliðsjónar komi til þess að endurnýja þurfi ferju. Vegagerðin fagnar því að gera eigi stjórnsýsluútekt en bendir jafnframt á að nýlega var gerð slík úttekt á Vegagerðinni. Þá reiknar Vegargerðin með því að verkefnahópur sá sem samgönguráðherra hefur beðið Vegagerðina að mynda vinni hratt og örugglega þannig að Grímseyjarferjan komist sem fyrst í gagnið og verði mikil samgöngubót fyrir Grímseyinga. Lesa meira

14.8.2007 : Ríkisendurskoðun um Grímseyjarferju

Grímseyjarferjan

Ríkisendurskoðun hefur skilað af sér greinargerð um kaup og endurnýjun á Grímseyjarferju. Í maí í vor óskaði Ríkisendurskoðun eftir öllum gögnum Vegagerðarinnar er vörðuðu kaup á nýrri Grímseyjarferju og endurbætur á henni. Fékk Ríkisensurskoðun einnig gögn frá samgöngu- og fjármálaráðuneytum og átti svo fundi með helstu aðilum málsins.


Markmiðið með greinargerðinni er að kanna hvernig undirbúnigi var háttað og hvort hann hafi verið fullnægjandi, hvers vegna kostnaður hafi farið fram úr áætlunum og hvaða lærdóm megi draga af málinu.
Greinargerð Ríkisendurskoðunar

Lesa meira

14.8.2007 : Óshlíðargöng -- forval

Óshlíðargöng - Skarfaskersleið
Fimm verktakar og verktakahópar hafa óskað eftir því að taka þátt í forvali vegna Óshlíðarganga. Það eru þessir:
- Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík og Marti Contractors Ltd., Sviss;
- Metrostav a.s., Tékkland og Háfell ehf., Reykjavík;
- Ístak hf., Reykjavík;
- Leonhard Nilsen & Sønner As., Noregur og Héraðsverk ehf., Egilsstaðir;
- Klæðning ehf., Hafnarfjörður Lesa meira

8.8.2007 : Stjórnarfundur Norræna vegtæknisambandsins

Frá stjórnarfundi Norræna vegtæknisambandsins

Norræna vegtæknisambandið NVF heldur stjórnarfund sinn í Reykjavík nú í ágúst. Norræna vegtæknisambandið er samstarfsvettvangur vegargerða Norðurlandanna og fyrirtækja í einkageiranum sem koma að vegagerð á einhver hátt. Á fjögurra ára fresti er haldin stór ráðstefna, Via Nordica, og verður hún næst haldin í Finnlandi að ári. Síðan verður ráðstefna haldin á Íslandi 2012 í hinu nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsi.

Lesa meira

3.8.2007 : Arðsemi -- forgangsröðun

Thverun Mjoafjardar

”Í forgangsröðun þar sem stjórnmálamenn þurfa að velja á milli ólíkra kosta þarf að taka tillit til mjög margra þátta sem hafa pólitískt eða efnahagslegt vægi og er greiningin eitt af þeim hjálpartækjum sem stjórnmálamenn geta stuðst við,” svo segir í skýrslu um forgangsröðun fjárfestinga í innviðum.


Skýrsluna má finna hér á vef Vegagerðarinnar en hún er seinni skýrsla af tveimur um arðsemi og forgangsröðun framkvæmda.”

Lesa meira

31.7.2007 : Malbik endar -- ný skilti fyrir erlenda ferðamenn

Malbik endar - nýtt skilti

Ný skilti þar sem vakin er sérstök athygli erlendra ökumanna á því að senn ljúki bundnu slitlagi og við taki malarvegur verða sett upp á um 20 stöðum á þjóðvegakerfinu á næstu vikum.


Samgönguráðherra, vegamálastjóri og forstjóri Sjóvár afhjúpuðu eitt slíkt skilti í dag. Um er að ræða samvinnuverkefni Vegagerðarinnar og Sjóvár.

Lesa meira

27.7.2007 : Ekki göng til Eyja -- kraftur settur í Bakkafjöruhöfn

Herjólfur

Í ljósi skýrslu VST um jarðgöng til Vestmannaeyja ákvað ríkisstjórnin í dag föstudag að leggja áform um gerð jarðganga til Vestmannaeyja á hilluna en í stað þess að setja kraft í að ljúka gerð Bakkafjöruhafnar. Ástæða þessa er sú að í ljósi mikils kostnaðar við jarðgöng og mikillar jarðfræðilegrar óvissu eru göng ekki fýsileg.


Stefnt er að því að taka Bakkafjöruhöfnina í gagnið seint á árinu 2010. Einnig hefur samgönguráðherra og fjármálaráðherra samið við forstjóra Eimskips um að fjölga ferðum Herjólfs um 15 á árunum 2008 til 2010. Lesa meira

26.7.2007 : Norðfjarðarvegur um Norðfjarðargöng, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar - Drög að tillögu að matsáætlun

Nörðfjarðargöng - teikning

Vegagerðin kynnir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Norðfjarðarvegi, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar í Fjarðabyggð í Suður-Múlasýslu. Byggja á jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og í tengslum við framkvæmdina verða nýir vegir byggðir, beggja vegna gangnamunnanna.


Framkvæmdin er alls um 16 km löng og nær frá Norðfjarðarvegi, sunnan Eskifjarðar, að núverandi Norðfjarðarvegi norðan Norðfjarðarár í Norðfirði. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Austfjörðum og styrkja byggðarlög á Austurlandi.

Lesa meira

26.7.2007 : Göng til Vestmannaeyja kosta 50 til 80 milljarða króna

Vestmannaeyjar

Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur lokið mati á kostnaði við gerð jarðganga sem vegtengingu milli Vestmannaeyja og Landeyja. Niðurstaða matsins er sú að tæknilega sé mögulegt að gera slík göng og að kostnaðurinn verði líklega á bilinu 50 til 80 milljarðar króna eftir gerð ganganna en áhætta er talin mikil.


Fjallað verður um skýrsluna á fundi ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag og í framhaldi af því verður hún gerð opinber.

Lesa meira

23.7.2007 : Athugasemd við frétt

Herjólfur

Á laugardaginn 21. júlí sl birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem því var haldið fram að bæjaryfirvöld hafi ekki enn fengið svör við hvernig staðið verði að næturferðum Herjólfs um verslunarmannahelgina.


Þetta stenst ekki skoðun því þegar í byrjun júlí hafði Eimskip auglýst þrjár viðbótarferðir í kringum verslunarmannahelgina og með því eru núna ákveðnar fimm næturferðir Herjólfs á þessum tíma. Á fimmtudaginn óskaði bæjarstjóri Vestmannaeyja eftir tveimur ferðum til viðbótar, en ekki verður betur séð en að önnur ferðin sé nú þegar ákveðin.

Lesa meira

19.7.2007 : Umferðarkönnun Öxnadalsheiði

Umferðarkönnun

Vegagerðin mun standa fyrir umferðarkönnun á Hringvegi um Öxnadalsheiði, fimmtudaginn 19. júlí og laugardaginn 21. júlí 2007. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 – 23:00 báða dagana.


Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli staða og munu niðurstöður m.a. nýtast við áætlanagerð.

Lesa meira

13.7.2007 : Stórátak í vegagerð, flýtingin fyrir 6,5 milljarða króna

Brúarmynd
Vegna nokkurrar umfjöllunar fjölmiðla um þau ummæli aðstoðarvegamálastjóra í morgunfréttum Útvarpsins á fimmtudaginn síðastliðinn um að ekki væri hægt að tryggja það að öll verk sem ætlað er að flýta verði lokið á ætluðum tíma er rétt að árétta að:


Mikið álag hefur verið á ráðgjafastofum á undanförnum árum og hefur af þeim sökum undirbúningur verka stundum dregist lengur en Vegagerðin hefði kosið. Nú virðast hins vegar vera teikn á lofti um að draga sé úr þenslunni og væntum við vegagerðarmenn því þess að unnt verði að sinna okkur í auknum mæli.


Tilraunir hafa verið gerðar til þess, einkum í fyrirsögnum fjölmiðla, að túlka framangreind ummæli svo, að samgönguráðherra og ríkisstjórnin hafi verið að lofa framkvæmdum sem ekki sé unnt að standa við. Því fer fjarri. Allar upplýsingar og forsendur, sem ríkisstjórnin byggði ákvörðun sína á, svo sem um mögulegan upphafstíma framkvæmda, verklengd og verklok, komu frá Vegagerðinni.


Að sjálfsögðu hefur Vegagerðin fulla trú á því, að þær áætlanir, sem hún setti þar fram standist, m.a. að unnt verði að bjóða út a.m.k. helming framkvæmdanna innan hálfs árs, þótt varnagli sé sleginn.

Lesa meira

12.7.2007 : Umhverfisskýrsla Vegagerðarinnar fyrir 2006 komin út

Vesturós Héraðsvatna 2006

Vegagerðin vill geta metið og lágmarkað umhverfisáhrif starfseminnar og metið árangur af umhverfisstarfi, aukið umhverfisvitund starfsmanna og stuðlað að betri nýtingu hráefna.


Til þess að það megi takast hefur Vegagerðin vaktað helstu umhverfisþætti í starfseminni og fært í grænt bókhald. Vegagerðinni er þó ekki skylt að færa grænt bókhald skv. lögum.

 


Á þessu ári eru liðin tíu ár síðan fyrst var samþykkt formleg stefna í umhverfismálum hjá Vegagerðinni. Fimm árum áður hafði verið skipaður sérstakur vinnuhópur um umhverfismál og má raunar fullyrða að löngu fyrr hafi vegagerðarmenn verið meðvitaðir um að umgangast bæri umhverfið með virðingu.

Lesa meira

10.7.2007 : Tvenn göng 2012, vegagerð fyrir 6,5 milljarða króna flýtt

Framkvæmdum sem flýtt verður

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að flýta framkvæmdum í vegagerð á 11 stöðum á landinu fyrir alls 6,5 milljarða króna umfram það sem þegar hefur verið ákveðið.


Um er meðal annars að ræða tvenn jarðgöng, göng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum annarsvegar og hinsvegar ný göng til Norðfjarðar fyrir austan. Þá er gert ráð fyrir því að flýta Suðurstrandarvegi, ljúka Fróðárheiði og byggja Dettifossveg svo dæmi séu tekin.


Þá er ný vegagerð einnig áætluð en það er vegur um Öxi.

Lesa meira

9.7.2007 : Umferð á þjóðvegum 2006

Umferð - hringtorg

Umferð á þjóðvegum landsins jókst um sex prósent milli áranna 2005 og 2006. Í heild voru eknir 2121 milljón kílómetrar í fyrra. Stærri hluti umferðarinnar er í dreifbýli eða 57 prósent en rúm 36 prósent á þjóðvegum á höfuðborgarsvæðinu.

Lesa meira

5.7.2007 : Drög að tillögu um matsáætlun vegna Sundabrautar

Sundabraut göng

Unnin hafa verið drög að tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 1. áfanga Sundabrautar. Um er að ræða nýjan kost, jarðgöng og breytingu á leið III, Eyjalausn.


Áður hefur verið gerð matsskýrsla vegna þriggja kosta þ.e.a.s. hábrúar, botnganga á leið I og Eyjalausnar á leið III. Til 10. ágúst næstkomandi gefst fólki kostur á að senda inn athugasemdir við tillöguna en að því loknu verða drögin og athugasemdir sendar Skipulagsstofnun til umfjöllunar.

Lesa meira

4.7.2007 : Þvottur vegna blæðinga

Einbreið brú

Það er eðlilegt að vegfarendur komist leiðar sinnar áfallalaust en það er ekki hægt að tryggja að menn komist alla leið án þess að skíta út bíla sína.


Blæðingar sem áttu sér stað við eftir lagningu klæðingar fyrir norðan Akureyri á dögunum voru meiri en svo að hægt sé að sætta sig við þær. Þess vegna var vegfarendum bættur skaðinn en Vegagerðin fer nú yfir verkferlið vegna þess atviks.

Lesa meira

3.7.2007 : Helmingur banaslysa í fyrra vegna hraðaksturs eða aksturs undir áhrifum

Af slysavettvangi
Helminginn eða 14 af 28 banaslysum í umferðinni í fyrra má rekja fyrst og fremst til hraðakstur eða ölvunarakstur og/eða fíkniefnanotkunar, samkvæmt nýútkominni skýrslu Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Lesa meira

2.7.2007 : EuroRAP gæða og öryggiskönnun íslenskra vega

Skrifað undir
Í dag, 2. júlí, skrifuðu fulltrúar Umferðarstofu og FÍB undir samning um gæða- og öryggiskönnun íslenskra vega undir merkjum EuroRAP. Umferðarstofa styrkir verkefnið fyir hönd Samgönguráðuneytisins en FÍB sér um framkvæmdina. Lesa meira

27.6.2007 : Þúsundir gengu gegn umferðarslysum

Gengið gegn umferðarslysum


Talið er að fjögur til fimm þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni gegn umferðarslysum í Reykjavík í dag og nokkur hundruð á Selfossi og á Akureyri.
Frumkvæði að göngunni eiga nokkrir hjúkrunarfræðingar á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.


Lesa meira

25.6.2007 : Göngum gegn slysum

Göngum gegn slysum

Hjúkrunarfræðingar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi standa fyrir fjöldagöngu þriðjudaginn 26. júní í þeim tilgangi að vekja almenning til umhugsunar um afleiðingar hraðaksturs og þess að aka bíl undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja.


Lesa meira

20.6.2007 : Óshlíðargöng, forval

Óshlíðargöng - Skarfaskersleið


Vegagerðin hefur auglýsir eftir þátttakendum í forvali vegna jarðganga milli Hnífsdals og Bolungarvíkur, ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega.


Tilboð verða væntanlega opnuð eftir áramót og framkvæmdir hefjast næsta vor.


Lesa meira

13.6.2007 : Ferðum Herjólfs fjölgað í sumar

Herjolfur

Ríkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að ferðum Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs verði fjölgað í sumar.

 

Áætlað er að bæta við rúmlega 20 ferðum á mikilvægum ferðadögum og þá daga verða því þrjár ferðir á dag.

Lesa meira

7.6.2007 : Að hugsa vel um fé ríkisins

Oilean Arann kemur til landsins

Írska ferjan Oilean Arann var keypt haustið 2005 til að taka við af Sæfara í siglingum til Grímseyjar en Sæfari stenst ekki Evrópureglur um ferjur í farþegasiglingum eftir 1. júlí 2009. Áætlað er að kostnaður við kaupin á írsku ferjunni og endurbætur verði um 400 milljónir króna. 


Á sínum tíma var áætlað að nýsmíði myndi kosta 600-700 milljónir króna eða um 700-800 milljónir króna á núgildandi verðlagi. Þessi lausn er því mun ódýrari en nýsmíði.


Nýja ferjan mun standast kröfur sem gerðar eru til slíkra skipa og bætir til muna aðstöðu Grímseyinga frá því sem nú er með Sæfara.   

Lesa meira

6.6.2007 : Eyvindarhvammur við Krýsuvíkurveg

Jón afhjúpar

Nýr áningarstaður var nýlega opnaður við Eyvindarhvamm við Krísuvíkurveg.


Það var Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri sem formlega opnaði áningarstaðinn eftir að starfsmenn Vegagerðarinnar höfðu gróðursett um 60 tré við áningarstaðinn.

Lesa meira

4.6.2007 : Umferðareftirlit Vegargerðarinnar - Að vinna vinnuna sína

Vegaeftirlitsmenn að störfum



Það er enginn sérlega glaður þegar upp kemst um brot í umferðinni. Það þekkja eftirlitsmenn Umferðareftirlits Vegargerðarinnar mæta vel.


Flestir landsmenn gera sér samt grein fyrir því að eftirlitið er nauðsynlegt.


Sveinn Kjartansson fyrrverandi framkvæmdastjóri, líkir starfsmönnum Vegagerðarinnar við ofbeldismenn Hitlers, í opnu bréfi til samgönguráðherra í Morgunblaðinu 1. júní sl.


Lesa meira

31.5.2007 : Sprengt á ný

Héðinsfjarðargöng
Búnaður til að stöðva vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum barst til landsins um síðustu helgi. Nú hefur tekist að þétta bergið og hlé það sem verið hefur verið á sprenginum vegna vatnslekans er því lokið. Unnið er af fullum krafti við sprengingar. Lesa meira

30.5.2007 : Samgönguráðherra heimsækir Vegagerðina

Fundur með samgönguráðherra


Það ætti flestum að vera ljóst að nýr samgönguráðherra Kristján L. Möller hefur mikinn áhuga á vegagerð enda var Vegagerðin fyrsta stofnun ráðuneytisns sem hann heimsótti í sínu nýja starfi.


Þann 29. maí kom hann við í Borgartúni 7.


Lesa meira

29.5.2007 : Hringvegur - Gatnamót við Þingvallaveg

Hringvegur - Gatnamót við Þingvallaveg

Á næstu dögum hefjast framkvæmdir við gerð hringtorgs á gatnamótum Hringvegar (Vesturlandsvegar) og Þingvallavegar.


Verið er að vinna að uppsetningu varúðarmerkja vegna framkvæmdarinnar.


Meðan á verkinu stendur má búast við tímabundnum truflunum á umferð og eru vegfarendur hvattir til að sýna fyllstu varúð við akstur um svæðið.


Lesa meira

21.5.2007 : Bláskeggsárbrú 100 ára ¿ endurbætur í sumar

Bláskeggsárbrú 100 ára

Unnið verður að endurbótum og viðgerð á Bláskeggsárbrú í Hvalfirði í sumar. Vegagerðin samþykkti nýlega fyrir sitt leiti að hefja framkvæmdir við endurbætur. Reiknað er með að þær muni kosta 8 – 10 milljónir króna en fleiri koma að fjármögnun því Fornleifavernd og Hvalfjarðarsveit hafa lagt fram fé til verksins.
Lesa meira

16.5.2007 : Flýtt fyrir tengingum við nýtt Lundarhverfi í Kópavogi

Breikkun Nýbýlavegar að Birkigrund - afstöðumynd


Föstudaginn 11. maí skrifuðu þeir nafnarnir Gunnar I Birgisson bæjarstjóri og Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri undir samning um kostnaðarskiptingu á milli Vegagerðarinnar og Kópavogsbæjar vegna framkvæmdanna við Nýbýlaveginn.


Hlutur Kópavogs er 29 prósent en Vegagerðarinnar 71 prósent.


Lesa meira

15.5.2007 : Fallist á sjónarmið Vegagerðarinnar varðandi lagningu Hringvegar um Hornafjarðafljót

Hornafjarðarfljót

Umhverfisráðuneytið hefur þann 11. maí fellt úr gildi þann þátt ákvörðunar Skipulagsstofnunar sem snýr að öðrum veglínum en þeim sem Vegagerðin hafði lagt fram.


Þann 5. desember síðastliðinn tók Skipulagsstofnun þá ákvörðun um matsáætlun Vegagerðarinnar að einnig þyrfti að meta umhverfisáhrif á öðrum leiðum, annars vegar svokölluðum núllkosti, sem er að fara sömu veglínu og nú er til staðar, og hinsvegar leiðum 4a, 4b, 5a og 5b.


Lesa meira

12.5.2007 : Gjábakkavegur samþykktur

Gjábakkavegur - Horft til vesturs í landi Miðfells

Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar með einu skilyrði.


Skipulagsstofnun hafði þann 24. maí í fyrra fallist á alla kosti sem Vegagerðin lagði fram vegna lagningar Gjábakkavegar á milli Laugarvatns og Þingvalla í Bláskógabyggð.


Úrskurður Skipulagsstofnunar var kærður til umhverfisráðherra 26. júní 2006.


Vegagerðin mun í ljósi þessa úrskurðar ráðherra hefja vinnu við hönnun vegar samkvæmt leið 3+7


Lesa meira

7.5.2007 : Kynningarbæklingur um samgönguáætlun 2007 - 2010

Kynningarbæklingur um samgönguáætlun 2007 - 2010

Samgönguráðuneytið hefur gefið út kynningarbæklinginn Samgönguáætlun 2007-2010.


Í bæklingnum er að finna upplýsingar um fjögurra ára samgönguáætlun og meðal annars sýnt á kortum hvar á landinu og hvar á höfuðborgarsvæðinu unnið verður að helstu verkefnum. Einnig eru tilgreind nokkur helstu verkefni síðustu ára.


Lesa meira

25.4.2007 : Umferðaröryggi í forgangi

Reykjanesbraut

Alþjóðleg umferðaröryggisvika var haldin 23. - 29. apríl sl.


Vegagerðin sinnir fjölda verkefna sem stuðla eiga að auknu öryggi í umferðinni, ýmist ein og sér eða í samvinnu við aðra.


Samkvæmt nýsamþykktri samgönguáætlun 2007-2010 er að finna umferðaröryggisáætlun þar sem sett er fram meðal annars áætlun um sérstakar aðgerðir til að fækka slysum og lækka kostnað samfélagsins af umferðarslysum.

Lesa meira

29.3.2007 : Ný vegalög

Vegalög 2007

Vegagerðin starfar samkvæmt vegalögum nr. 45/1994.


Alþingi samþykkti ný vegalög þann 17.03.2007    Lögin taka gildi 01.01. 2008


Fyrir þá sem vilja kynna sér breytingar á lögunum er nú hægt að skoða lögin hér á vef Vegagerðarinnar, eða á vef alþingis: http://www.althingi.is/altext/133/s/1384.html


Lesa meira

22.3.2007 : Skýrsla Umferðarstofu um umferðarslys árið 2006 komin út

Sturla Böðvarsson fjallar um skýrslu um umferðarslys 2006

Skýrsla Umferðarstofu um umferðarslys á síðasta ári var kynnt á blaðamannafundi 22.03.2007.


Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði við það tækifæri að slysin á síðasta ári hefðu verið of mörg og ekki í samræmi við markmið umferðaröryggisáætlunar um fækkun slysa.


Í fyrra lést 31 í 28 slysum en árið 2005 létust 19 manns í 16 slysum. Í fyrra slösuðust 153 alvarlega en þeir voru 129 árið 2005. Tvöfalt fleiri karlar en konur slösuðust í fyrra.


Lesa meira

20.3.2007 : Burðarþolshönnun og niðurbrotsmódel vega

NVF34 ráðstefna 2007

Ráðstefna haldin á Grand Hótel Reykjavík 22. og 23. mars 2007


Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru í fremstu röð sérfræðinga í heiminum á sviði vega- og gatnahönnunar og niðurbroti vega.


Ráðstefnan er haldin af Vegagerðinni, Norræna vegtæknisambandinu (NVF), Tækninefnd 34 og nefnd um rannsóknir og þróun á sviði vegagerðar á Norðurlöndunum (NordFoU).


Lesa meira

5.3.2007 : Úthlutun úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2007 er nú lokið

Rannsóknastyrkir

Alls bárust 159 umsóknir og heildarupphæð umsókna var um 320 milljón krónur.


Til úthlutunar að þessu sinni voru 117 milljónum króna, sem var úthlutað til 98 verkefna og hafa umsækjendur fengið sendan tövlupóst um samþykki eða synjun umsókna sinna.


Upplýsingar um samþykkt verkefni má finna undir Rannsóknarverkefni - Almenn verkefni 2007

Lesa meira

13.2.2007 : Umsóknir í rannsóknasjóð Vegagerðarinnar

Umsóknarfrestur útrunninn


Frestur til að skila inn umsóknum um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2007, rann út þann 5. febrúar síðastliðinn.


Alls bárust 159 umsóknir og heildarupphæð umsókna var um 320 milljón krónur. Sjóðurinn hefur 117 milljónir til ráðstöfunar árið 2007.

Lesa meira

8.2.2007 : Norðausturvegur til Vopnafjarðar. Brunahvammsháls - Vopnafjörður

Tenging Vopnafjarðar við Hringveg

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar, frummatsskýrslu um Norðausturveg til Vopnafjarðar, Brunahvammsháls - Vopnafjörður.


Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 8. febrúar til 23. mars 2007, sjá Frummatsskýrslu og fylgiskjöl hér.


Lesa meira

30.1.2007 : Viðbragðsáætlun í Fáskrúðsfjarðargöngum

Fáskrúðsfjarðargöng

Laugardaginn 27. janúar var í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins frétt frá Austurlandi um að ekki væri til viðbragðsáætlun fyrir Fáskúðsfjarðargöng, meira en ári eftir opnun ganganna.


Eins og fram kom í fréttinni hafa verið til um töluverðan tíma drög að slíkri áætlun, en ekki hefur verið gengið frá henni formlega, eins og á auðvitað að gera.


Lesa meira

6.1.2007 : Rannsóknarstyrkir 2007 - umsóknafrestur er til 5. feb. 2007

Rannsóknastyrkir


Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna fyrir árið 2007.


Umsóknir um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna þurfa að berast fyrir 5. febrúar 2007.


Aðilar innan og utan Vegagerðarinnar geta sótt um fjárframlög. Rannsóknarráð stofnunarinnar sér um úthlutun.


Lesa meira




Útlit síðu: