Fréttir

22.12.2006 : Jóla- og áramótakveðja Vegagerðarinnar 2006

Jólakveðja Vegagerðarinnar 2006

Vegagerðin sendir landsmönnum öllum sínar bestu óskir um


Gleðileg jól og farsælt komandi ár

með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða

Lesa meira

21.12.2006 : Reykjanesbraut um Garðabæ

Reykjanesbraut um Garðabæ

Ný mislæg gatnamót við Urriðaholt voru tekin í notkun um miðjan október. Malbikun nýrrar akbrautar frá Kaplakrika að Fífuhvammsvegi er langt komin. Ýmis vinna við frágang með vegi hefur tafist af ýmsum ástæðum, þ.m.t. veðurfarslegum.


Nú er unnið að því að koma endanlegri lýsingu á þann kafla sem þegar hefur verið tekinn í notkun og vonast er til að það náist fyrir áramót.

Lesa meira

14.12.2006 : Jarðgöng á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar

Jarðgöng á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar

Greinargerð um mögulegar jarðgangaleiðir á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar var kynnt á fundi í ráðhúsinu í Bolungarvík í dag. Á fundinum voru samgönguráðherra og Vegamálastjóri með fylgdarliði og bæjarfulltrúar í Bolungarvík og á Ísafirði.


Í greinargerðinni kemur fram að þrjár leiðir séu taldar mögulegar og næst sé að taka saman kynningarskýrslu um þessar leiðir og umhverfisáhrif þeirra. Leiðirnar eru Seljadalsleið, Skarfaskersleið og Hnífsdalsleið, sjá nánar yfirlitsuppdrátt.

Lesa meira

14.12.2006 : Lokaskýrsla um áhrif höfuðborgarsvæðisins og ferðavenjur

Áhrif höfuðborgarsvæðisins

Komin er út lokaskýrsla um rannsóknarverkefnið ,,Áhrif höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða.”
Ráðgjafarfyrirtækið Land-ráð sf. undir stjórn Bjarna Reynarssonar hefur unnið fimm skýrslur um málið fyrir samgönguyfirvöld en markmið rannsóknarinnar er að afla glöggra upplýsinga um ferðavenjur innanlands fyrir stefnumótun í samgöngumálum.

Lesa meira

5.12.2006 : Norðfjarðarvegur (92) um Hólmaháls

Vegagerðin fyrirhugar að endurbyggja Norðfjarðarveg, vegnúmer 92, um Hólmaháls á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Núverandi vegur er frekar mjór og hlykkjóttur með bröttum brekkum.


Um er að ræða 5,1 km langan kafla.


Byggður verður nýr vegur utan vegsvæðis núverandi vegar, nema til endanna þar sem vegurinn tengist aftur inn á núverandi Norðfjarðarveg og þar sem vegurinn þverar núverandi veg í Hólmahálsi Reyðarfjarðarmegin.

Lesa meira

4.12.2006 : Samtök opinberra verkkaupa (SOV) stofnuð

Stofnun SOV

Þann 1. desember 2006 var haldinn stofnfundur SOV – Samtaka opinberra verkkaupa. SOV er samstarfsvettvangur opinberra aðila á Íslandi, sem stunda kaup á verkum og þjónustu þeim tengdum. Aðild að samtökunum geta átt ríkisstofnanir og sveitarfélög.


Stofnaðilar SOV eru Framkvæmdasýslan, Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar, Siglingastofnun og Vegagerðin.

Lesa meira




Útlit síðu: