Fréttir

30.10.2006 : Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2006 auglýst

Rannsóknarráðstefna 2006

Þróunarsvið Vegagerðarinnar stendur fyrir árlegri rannsóknaráðstefnu sinni föstudaginn 3. nóvember 2006 á Hótel Nordica í ráðstefnusal á fyrstu hæð.


Þetta er í fimmta sinn sem rannsóknaráðstefnan er haldin. Kveðið er á í vegalögum að 1% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.

Lesa meira
 

27.10.2006 : Afhending viðurkenningar fyrir vegagerðarmannvirki

Norðausturvegur (85) um Tjörnes


Dómnefnd vegna viðurkenningar Vegagerðarinnar fyrir gerð og frágang mannvirkja hefur lokið störfum og ákveðið að framkvæmdin Norðausturvegur (85) á Tjörnesi skuli hljóta viðurkenningu að þessu sinni.


Til greina komu verk sem lokið var við á árunum 2002-2004.

Viðurkenningarskjöl voru afhent á Akureyri 26. október. Það voru Norðaustursvæði Vegagerðarinnar og verktakinn Ístak hf. sem tóku á móti viðurkenningunum.

Lesa meira

 

26.10.2006 : Drög að vegalögum til umsagnar

Skjaldarmerki

Nefnd sem skipuð var að samgönguráðherra 17. janúar 2006 til að endurskoða vegalög nr. 45/1994 hefur skilað niðurstöðum í formi frumvarps til nýrra vegalaga.


Þrír nefndarmenn skrifuðu undir nefndarálitið með fyrirvara og skiluðu séráliti sem er að finna sem fylgiskjal með frumvarpinu.


Nefndarálitið ásamt skýringum er hér með lagt fram á vef samgönguráðuneytisins til umsagnar þeirra sem áhuga hafa.

Lesa meira
 

20.10.2006 : Undirbúningur samgönguáætlunar 2007 - 2018

Skjaldarmerki

Vinna við samgönguáætlun 2007 - 2018 er á lokastigi en ráðgert er að leggja hana fyrir Alþingi nú í haust.


Í samgönguáætlun er sett fram stefnumótun og helstu markmið sem unnið skal að, grunnnet samgöngukerfisins er skilgreint, sett fram áætlun um fjáröflun til samgöngumála og yfirlit um útgjöld til allra helstu þátta í rekstri samgöngustofnana, svo og viðhalds, öryggismála og nýframkvæmda á sviði flugmála, siglingamála og vegamála.


Lesa meira
 

12.10.2006 : Vegstaðall: Vegrið - útgáfa til umsagnar

Vegstaðall - Vegrið

Lögð er hér fram, til umsagnar, drög að vegstaðli, sem fjallar um vegrið.

Lögð er áhersla á að menn kynni sér þessa útgáfu og geri við hana athugasemdir, fyrir 1. nóvember 2006, og sendi Eymundi Runólfssyni.



Lesa meira

 

6.10.2006 : Auglýsing um umhverfismat Samgönguáætlunar 2007 - 2018

Skjaldarmerki


Samgönguráðuneytið og stofnanir þess auglýsa hér með kynningu á umhverfismati á tillögu að samgönguáætlun 2007 – 2018 í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.


Samgönguáætlun er unnin í samræmi við lög nr. 71/2002 og er hún samræmd áætlun fyrir flug-, siglinga- og vegamál. Umhverfismatið tekur til áhrifa helstu markmiða og helstu framkvæmda samgönguáætlunar á umhverfið.

Lesa meira

 

2.10.2006 : Vel heppnuð ráðstefna um evrópska staðla í vegagerð

NVF Logo
Föstudaginn 29. september síðastliðinn var haldin ráðstefna um evrópska staðla í vegagerð í Reykjavík.

Ráðstefnuna sóttu ríflega 100 manns, þar af um 60 erlendis frá. Á ráðstefnunni, sem haldin var á vegum nefnda 33 og 34 innan Norræna vegtæknisambandsin (NVF), var fjallað um staðla frá tækninefndum CEN/TC 154 (steinefni) og CEN/TC 227 (vegagerðarefni) og innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum. Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica