Fréttir

29.8.2006 : Framkvæmdafréttir 24. tbl. 2006

Hringtorg í Reykjavík

Út er komið 24. tölublað Framkvæmdafrétta.


Hvers vegna ekki að nota hringtorgin meira á þjóðvegum? er titill áhugaverðrar greinar í blaðinu, þar sem fjallað er meðal annar um svokallaða "núll sýn" sem þjóðþing Noregs og Svíþjóðar hafa samþykkt.


Öryggismál umferðarinnar er einnig kjarni annarra greina blaðsins.

Lesa meira

16.8.2006 : EuroRAP verkefnið

Reykjanesbraut

Nú liggja fyrir fyrstu niðurstöður úr svokölluðu EuroRAP verkefni sem FÍB stendur að. EuroRAP er úttekt á umferðaröryggi vega og umhverfi þeirra og hefur þegar verið unnið að slíkum samræmdum úttektum í nokkrum Evrópuríkjum.


Vegagerðin hefur fylgst með þróun EuroRAP í Evrópu í nokkur ár, gegnum systurstofnanir og ýmis samtök og nefndir sem starfsmenn taka þátt í.


Í þeirri forkönnun sem þegar hefur verið unnin hérlendis lagði Vegagerðin til ýmis gögn og þekkingu varðandi vegakerfið og umferðaröryggismál, og stofnunin mun áfram styðja við framhald verkefnisins.

Lesa meira

1.8.2006 : Vegirnir okkar - kynningarrit um starfsemi Vegagerðarinnar

Hringbraut v.Bústaðarveg

Vegakerfinu er stundum líkt við æðakerfi mannslíkamans sem viðheldur starfseminni með því að tryggja eðlilegt blóðstreymi um hina ýmsa hluta líkamans.


Með sama hætti eru traust vegakerfi og góðar samgöngur forsenda þess að mannlíf og atvinnulíf geti vaxið og dafnað í þéttbýli sem dreifbýli.


Eðli málsins samkvæmt er Vegagerðin með starfsemi um allt land og umsvif hennar og áhrif á lífið í landinu eru meiri en margan grunar og er kynningarritinu "Vegirnir okkar" ætlað að gefa nokkra innsýn í helstu þætti starfseminnar, almenningi til fróðleiks.

Lesa meira



Útlit síðu: