Fréttir

23.6.2006 : Umferð á þjóðvegum 2005

Kringlumyrarbraut

Heildarakstur á þjóðvegum 2005 var rúmar 2000 milljónir, eða 2 milljarðar, eknir km. Aukning umferðar milli áranna 2004 og 2005 reyndist vera 6,0%. Til samanburðar má geta þess að umferðaraukning var 3,4% að meðaltali á ári á tímabilinu 1999-2004.

Lesa meira
 

15.6.2006 : Sjálfvirkt hraðaeftirlit á þjóðvegum

Við Hringveginn í Melasveit. Frá vinstri: Arve Nyborg frá norsku vegagerðinni, Bryndís Friðriksdóttir frá Línuhönnun, Auður Þóra Árnadóttir frá Vegagerðinni og Per Engeset frá norsku vegagerðinni.
Umferðaröryggisáætlun stjórnvalda er hluti samgönguáætlunar. Sérstakur samráðshópur sér um að útfæra áætlunina og halda utan um framkvæmd hennar. Fulltrúi samgönguráðuneytisins er formaður hópsins en auk hans eiga fulltrúar Umferðarstofu, Vegagerðarinnar og Ríkislögreglustjóra sæti í honum. Lesa meira
 

12.6.2006 : Skýrsla Rannsóknarnefndar umferðarslysa 2005

Rannsóknarnefnd umferðarslysa

Skýrsla RNU árið fyrir árið 2005 er komin út og er birt á slóðinni http://www.rnu.is. Í skýrslunni er fjallað um einstök banaslys á árinu 2005 í forvarnarskyni og er það breytt framsetning samanborið við fyrri skýrslur nefndarinnar. Er það gert með hliðsjón af nýrri löggjöf um nefndina.

Lesa meira
 

9.6.2006 : Hvalfjarðargöngin og Sundabraut. Mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar

Hvalfjarðargöng - suðurmunni

Á heimasíðu Ríkisendurskoðunar má finna nýútkomna greinargerð, þar sem fjallað er um kosti þess og galla að láta einkaaðila en ekki ríkið sjá um rekstur samgöngumannvirkja.

Niðurstöðurnar eru mjög áhugaverðar, ekki síst þar sem reynsla af undirbúningi og framkvæmd við gerð Hvalfjarðarganga er notuð til að meta væntanleg áform um gerð Sundabrautar.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica