Fréttir

31.5.2006 : Fundur vegamálastjóra Evrópu haldinn á Íslandi

CEDR fundur 2006

Um síðastliðin áramót tók Vegagerðin við forsæti til eins árs í samtökum vegamálastjóra/aðstoðarvegamálastjóra í Evrópu, CEDR (Conference of European Directors of Roads).


Fyrri fundur vegamálastjóranna árið 2006 er haldinn í Reykjavík dagana 31. maí - 2. júní. Fyrsta daginn er undirbúningsfundur ráðgjafanefndar samtakanna sem í sitja forsetar síðustu 2ja ára ásamt núverandi og viðtakandi forsetum. 1. júní er svo fundur allra vegamálastjóra, þar sem farið verður yfir ýmis mál í innra starfi samtakanna. Lesa meira

 

30.5.2006 : Nýr vefur Vegagerðarinnar var opnaður þann 24. maí síðastliðinn

Forsíða vefsins

Kannanir sem gerðar hafa verið hjá viðskiptavinum Vegagerðarinnar sýna að þeir nota vefinn mikið til að afla sér upplýsinga, og líklegt að það komi enn til með aukast með bættri tölvuþekkingu og bættum tækjabúnaði hjá notendum.


Viðskiptavinir Vegagerðarinnar, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fyrirtæki eiga að geta sparað sér tíma í viðskiptum við Vegagerðina með því að afla sér upplýsinga í gegnum vefinn. Vefurinn verður þannig valkostur við hlið textavarps og síma og er kynningarvettvangur fyrir þjónustu Vegagerðarinnar og þau verkefni sem hún sinnir.

Lesa meira
 

29.5.2006 : Könnun á hagkvæmum leiðum til uppbyggingar farsímakerfa á heiðarvegum

Farsímasamband við þjóðvegi

Á liðnum árum hefur umræða verið um nauðsyn farsímasambands á þjóðvegum landsins í öryggisskyni og af þeim sökum hefur Vegagerðin haft það til skoðunar að stuðla að slíkri uppbyggingu

Vegagerðin hefur reynt að meta slíka framkvæmd og er ljóst að um er að ræða mjög kostnaðarsamt verkefni og því vildi Vegagerðin kanna möguleika á hagkvæmari útfærslum til að ná settu marki. Vegagerðin leitaði til Merkja- og fjarskiptastofu Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands til að framkvæma slíka athugun og átti sú vinna sér stað á árinum 2003 og 2004.

Lesa meira
 

25.5.2006 : Rauði krossinn veitir viðurkenningar fyrir starf að umferðaröryggismálum

Vidurkenning Rauðakrossins
Á aðalfundi Rauða kross Íslands þann 20. maí tók Hreinn Haraldsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, við viðurkenningum fyrir störf Rannsóknarráðs umferðaröryggismála, RANNUM. Annars vegar var veitt viðurkenning til RANNUM fyrir mikilsvert framlag til umferðaröryggismála, og tók Hreinn við viðurkenningunni sem formaður stjórnar,og hins vegar voru Hreini og Óla H. Þórðarsyni formanni Umferðarráðs veittar viðurkenningar fyrir þeirra þátt í umferðaröryggisstarfi.

Lesa meira
 

20.5.2006 : Samningur um gerð Héðinsfjarðarganga

Héðinsfjarðargöng - Yfirlitsmynd frá Siglufirði
Laugardaginn 20. maí 2006 var undirritaður, um borð í bátnum Tý, í Síldarminjasafninu á Siglufirði verksamningur milli Vegagerðarinnar og fyrirtækjanna Metrostav a.s., Tékklandi og Háfells ehf. Reykjavík um gerð Héðinsfjarðarganga. Samningurinn var undirritaður af Jóni Rögnvaldssyni vegamálastjóra fyrir hönd Vegagerðarinnar og staðfestur af Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra. Fyrir hönd Metrostav a.s. undirrituðu samninginn þeir Jiri Belohlav aðalforstjóri og Zdenek Sinovski fjármálastjóri og fyrir hönd Háfells ehf., Eiður Haraldsson framkvæmdastjóri... Lesa meira
 

8.5.2006 : Umferðaröryggi í brennidepli

Umferð í Leirársveit

Austurríkismenn stýra Evrópu-sam-band-inu á fyrri hluta ársins 2006 og eitt megin áhersluefni þeirra þann tíma er umferðaröryggi. Af því tilefni boðuðu þeir til Evrópuráðstefnu um þau mál í Vínarborg í janúar 2006, þar sem margt athyglisvert kom fram. Þar sem efnisflokkurinn er mjög stór var umfjöllunin þrengd með því að beina sjónum fyrst og fremst að -öryggi vegamannvirkja en í þetta sinn síður að ökutækjum og ökumönnum. Fyrirlestrum og um-ræð-um var skipað niður í fjóra efnisflokka, sem um leið greina hvernig nú er unnið að flokkun umferðaröryggisstjórnunar vega í Evrópu, auk þess sem fjallað var um hagfræðilegt mat á umferðaröryggisáætlunum.

Lesa meira
 


Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica