Styrkvegir

Úrdráttur úr vegalögum nr. 80/2007


Í 3. gr. vegalaga er veghald og veghaldari skilgreint með eftirfarandi hætti:

Veghald: Forræði yfir vegi og vegsvæði, þ.m.t. vegagerð, þjónusta og viðhald vega.

Veghaldari: Sá aðili sem hefur veghald vegar.

Í 25. gr. vegalaga er fjallað um styrki til samgönguleiða. Greinin er svohljóðandi:

Í vegáætlun er heimilt að ákveða fjárveitingu til að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega samkvæmt lögum þessum.

Heimilt er að binda styrkveitingu samkvæmt þessari grein skilyrði um afnot vegar og merkingu hans.

Umsókn um styrk skal beint til Vegagerðarinnar sem gerir tillögu til ráðherra um styrkveitingu til umsækjanda.

Engar skyldur hvíla á ríkissjóði vegna samgönguleiða samkvæmt þessari grein.

Ráðherra setur nánari reglur um hvaða samgönguleiðir skulu styrktar samkvæmt ákvæði þessu og um framkvæmd styrkveitinga."


Fyrirvari varðandi veftilvísanir

Á vef Vegagerðarinnar eru birtir tenglar og tilvísanir, ýmist í reglugerðarsafn stjórnartíðinda og/eða lagasafn Alþingis.

Tenglar þessir eru ætlaðir til hægðarauka fyrir notendur vefs Vegagerðarinnar.

Engin ábyrgð er tekin á upplýsingum sem þar birtast og skal áréttað að ef misræmi er, gildir texti sem birtur er í Stjórnartíðindum.

Lög er að finna á slóðinni: www.althingi.is

Reglugerðir er að finna hér:
Reglugerðarsafn

Alþjóðasamninga má finna hér: www.umhverfisraduneyti.is

Helstu lagagögn og réttarheimildir: www.rettarheimild.is

Birtingar Stjórnartíðinda:
www.stjornartidindi.is



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica