Rally á þjóðvegum landsins
Framkvæmd:
- Framkvæmdastjóri rallyaksturs gerir keppnisáætlun um rallyakstur í byrjun hvers árs þar sem kemur fram hvar og hvenær áætlað er að halda hverja keppni ásamt tillögu að leiðavali. Hann sendir áætlunina til deildarstjóra leyfisveitinga til samþykktar um leiðaval og tímasetningar.
- Deildarstjóri leyfisveitinga samþykkir keppnisáætlun í samráði við rekstrarstjóra/þjónustustjóra og svæðisstjóra á viðkomandi svæði. Hann kynnir framkvæmdastjóra rallyaksturs umsagnir rekstrarstjóra og vekur athygli á því ef einhverjar leiðir eru utan þjóðvega og veitir upplýsingar um veghaldara.
- Deildarstjóri leyfisveitinga heldur fund með fulltrúum rallyakstur og á tímabilinu mars - apríl þar sem keppnisáætlanir eru kynntar. Fulltrúum rallyaksturs eru kynntar þær reglur sem gilda um merkingar rallysvæða.
- Deildarstjóri leyfisveitinga getur afturkallað leyfi til keppnishalds ef ástæða þykir.
- Rekstrarstjórar taka mið af keppnisáætlun við þjónustu þeirra leiða sem valdar hafa verið.
- Framkvæmdastjóri rallyaksturs og viðkomandi rekstrarstjóri taka út rallyleiðirnar ef talið er að vegir hafi skemmst, skrá niðurstöður athugana og senda til svæðisstjóra og deildarstjóra viðhalds og þjónustu á viðkomandi svæði.
- Ef leiðir hafa skemmst mikið af völdum rallaksturs áskilur Vegagerðin sér rétt til að innheimta hjá keppnishaldara kostnað við lagfæringar á skemmdunum.
Markmið með þessum vinnubrögðum er að lágmarka óþægindi og kostnað við viðgerðir vega eftir Rallykeppni.
Reglur um merkingar rallysvæða
- Keppnishaldarar setja upp merki við alla þá vegi sem eru lokaðir hverju sinni með sólarhrings fyrirvara.
- Allar merkingar skal taka niður strax að lokinni keppni.
- Stærð skilta skal vera (1,40x1,50 m) og uppfylla almenn ákvæði reglugerðar um umferðarmerki.
- Skiltin skulu hafa eftirfarandi útlit.

