Umsóknir og leyfi
Vegagerðin, í umboði innanríkisráðuneytis, hefur umsjón með ýmis konar leyfisveitingum og umsýslu þar að lútandi.
Þar á meðal er:
- Útgáfa almennra rekstrarleyfa til fólks- og farmflutninga á landi
- Útgáfa starfsleyfa til leigubílastöðva og bílaleiga
- Útgáfa atvinnuleyfa til leiguaksturs og eðalvagnaþjónustu
- Útgáfa á undanþágum vegna sérstakra flutninga (þungaflutninga) fyrir 44/49 tonna til aksturs án ökurita og til aksturs án ökumælis (kílómetragjald).
Keppnishaldarar fyrir Rallykeppnir sem fram eiga að fara á þjóðvegum, þurfa að skila inn keppnisáætlunum til Vegagerðarinnar til samþykktar. Þar fá þeir einnig leiðbeiningar um hvernig merkja skuli keppnisstað. Þetta er gert með umferðaröryggi í huga og eins til að tryggja að ástand veganna þar sem fyrirhugað er að keppnin fari fram, sé í samræmi við þarfir keppnishaldara. Sjá nánar undir liðnum Rally á þjóðvegum landsins.

