Sumarþjónusta
Með sumarþjónustu er átt við allar þær aðgerðir og þá viðgerðarvinnu á vegamannvirkjum og vegsvæðum sem gera þarf a.m.k. einu sinni á ári til að viðhalda því ástandi sem fyrir er og ætla má að þurfi að vera til að uppfylla þau markmið sem sett eru varðandi greiða umferð og almennt umferðaröryggi.
Vegakerfinu er skipt í 4 sumarþjónustuflokka og miðast sumarþjónusta við þann þjónustuflokk sem viðkomandi vegur er í. Flokkunin byggist að mestu á svokallaðri sumardagsumferð (SDU þ.e. meðalfjölda bíla á dag á tímabilinu maí - ágúst) en einnig á öðrum þáttum svo sem vegflokki, vegtegund og nálægð við hringveginn og mikilvæga ferðamannastaði.
Flokkarnir eru skilgreindir þannig:
- Þjónustuflokkur 1: Hringvegurinn frá Vík í vestur til Norðausturvegar (vestan megin) og umferðarþyngstu vegirnir.
- Þjónustuflokkur 2: Hringvegurinn frá Vík austur til Norðausturvegar (vestan megin), mikilvægir vegir sem tengjast hringveginum og umferðarþungir vegir.
- Þjónustuflokkur 3: Vegir sem eru tvíbreiðir og vegir sem koma í framhaldi af vegum í þjónustuflokki 2.
- Þjónustuflokkur 4: Aðrir stofn- og tengivegir
Helstu þjónustuverkefni eru:
Afvötnun, hreinsun vegsvæðis, lýsing, rykbinding, viðhald kantstika, viðhald leiðara, viðhald vegaxla, viðgerð bundinna slitlaga, viðgerð malarvega, viðgerðir á brúm, viðgerðir á ristarhliðum, vegheflun, yfirborðsmerkingar, þjónusta jarðganga o.fl.


