Ferjur
Í vegáætlun samgönguáætlunar 2007-2010 eru eftirtaldar ferjuleiðir taldar upp:
1. Vestmannaeyjar - Landeyjahöfn
Milli lands og Vestmannaeyja eru fluttir farþegar og bílar í reglulegum áætlunarferðum.2. Stykkishólmur - Flatey - Brjánslækur
Á milli Stykkishólms og Brjánslækjar eru fluttir farþegar og bílar í reglulegum áætlunarferðum með viðkomu í Flatey fyrir farþega og frakt.3. Ísafjörður - Vigur - Æðey
Til Æðeyjar og Vigur eru fluttir farþegar og frakt í reglulegum áætlunarferðum.4. Árskógsströnd - Hrísey
Á milli Árskógsstrandar og Hríseyjar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum.5. Akureyri - Hrísey - Dalvík - Grímsey
Á milli Akureyrar, Hríseyjar, Dalvíkur og Grímseyjar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum.6. Neskaupsstaður - Mjóifjörður
Á milli Neskaupstaðar og Mjóafjarðar eru fluttir farþegar og frakt í reglubundnum áætlunarferðum.
Vegagerðin styrkir rekstur framangreindra ferjuleiða að undangengnu útboði. Vegagerðin (ríkið) á þrjár ferjur, Vestmannaeyjaferjuna Herjólf, Hríseyjarferjuna Sævar og Grímseyjarferjuna Sæfara. Vegagerðin býður fram framangreindar ferjur til leigu í útboðum á rekstri ferjuleiðanna 1., 4. og 5. Á öðrum leiðum leggja bjóðendur fram skip í tilboðum sínum.
Hér er listi yfir þær ferjur sem eru í förum í dag:
| Vestmannaeyjar - Landeyjahöfn |
Herjólfur | |||||||||
| Stykkishólmur - Flatey - Brjánslækur |
Baldur | |||||||||
| Ísafjörður - Vigur - Æðey |
Bliki | |||||||||
| Árskógsströnd - Hrísey |
Sævar | |||||||||
| Akureyri - Hrísey - Dalvík - Grímsey Dalvík - Hrísey Dalvík - Grímsey |
Sæfari |
|||||||||
Neskaupsstaður - Mjóifjörður
|
Fjarðarferðir |


