Skýringar
Skýringar við færðarkort Vegagerðarinnar:
| Greiðfært |
Snjó- og íslaust yfirborð eða þegar a.m.k. annað hjólfar er autt sá hverri akrein og snjór eða ís á öðrum hlutum vegarins er það lítill að vegfarendum stafar ekki hætta af. Greiðfært yfirborð flokkast þannig:
|
||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Hálkublettir |
Vegyfirborð hulið ís eða þjöppuðum snjó á allt að 20% af lengd vegarkaflans. |
||||||||
| Hált |
Vegyfirborð hulið þurrum ís eða snjó á meira en 20 % af lengd vegarkaflans. Viðnámsstuðull lægri en 0,25. |
||||||||
| Flughált |
Ísing (glæra) eða vegyfirborð hulið blautum ís eða blautum þjöppuðum snjó á meira en 20 % af lengd vegarkaflans. Viðnámsstuðull lægri en 0,15. |
||||||||
| Krap/snjóþekja |
Krap: Vegyfirborð þakið af vatnsmettuðum snjó með þykkt allt að 10 sm. |
||||||||
| Þæfingur |
Vegyfirborð þakið að hluta eða öllu leyti með 10-20 sm lausu eða lítið þjöppuðum snjó og/eða stökum minni háttar sköflum og færð þannig að ekki telst öruggt færi nema fyrir vel búnar fólksbifreiðar með drif á öllum hjólum. |
||||||||
| Þungfært |
Vegyfirborð þakið af snjó með þykkt meiri en 20 sm og/eða stökum sköflum og færð þannig að ekki telst öruggt færi nema fyrir jeppa og stærri ökutæki. |
||||||||
| Ófært |
Ófært flokkast þannig:
|
![]() |
Ásþungi/heildarþungi 10t og 7t/5t/2t: Takmörkun á þunga ökutækja (einkennt með ásþungamerki B18.xx) |
|---|---|
![]() |
Vegavinna: Vegavinna/brúarvinna á vegi eða kafla og þess eðlis að ástæða er til að vara vegfarendur við og hvetja til aðgæslu (einkennt með vegavinnumerki A17.11) |
![]() |
Ósléttur vegur: Vegur eða vegarkafli það ósléttur að ástæða er til að vara vegfarendur við (einkennt með öldumerki A20.11) |
![]() |
Steinkast: Yfirborð vegar eða vegarkafla með lausri möl og hætta á steinkasti (einkennt með steinkastmerki A22.11) |
![]() |
Allur akstur bannaður: Vegi eða vegkafla lokað fyrir allri umferð ökutækja m.a. til að verja hann skemmdum (einkennt með merkinu allur akstur bannaður B01.11) |
![]() |
Óveður: Vindhraði 19 m/sek (hvassviðri, 37 hnútar) eða meiri eða vindhviður eru meiri en 26 m/sek (51 hnútur). |
![]() |
Snjókoma: Snjókoma það mikil að vegsýn er skert að einhverju leyti og/eða hætta er á að færð geti þyngst á næstu klukkustundum. |
![]() |
Skafrenningur: Laus snjór og vindhraði meiri en 11 m/sek (kaldi, 18 hnútar) og snjófok það mikið að vegsýn er að einhverju leyti skert og/eða hætta er á að færð geti þyngst á næstu klukkustundum. |
![]() |
Stórhríð: Vindhraði 16 m/sek eða meiri (allhvass, 30 hnútar) og ofankoma, erfitt ferðaveður og mikil hætta á að færð geti þyngst á skömmum tíma. |
![]() |
Éljagangur: Talsverð ofankoma og fjúk getur verið í éljunum en á milli er mun bjartara veður og betra skyggni. |
![]() |
Þoka: Dimm þoka með það skertri vegsýn að m.t.t. umferðaröryggis er talin ástæða til að vara ökumenn við. |
![]() |
Opnun: Unnið að mokstri. |
![]() |
Fært fjallabílum: Þessi skráning er eingöngu notuð þegar búið er að opna fjallvegi og hliðstæða vegi (t.d. Sprengisandsleið, veg í Laka o.s.frv.) og þá fyrir þær leiðir þar sem ekki er talið ráðlegt að fara um á fólksbílum. |
![]() |
Ekki vitað: Ekki vitað um færð. |























