Skýringar


Greiðfært:
Hálkulaust yfirborð eða a.m.k. annað hjólfar er autt á hverri akrein og snjór eða ís á öðrum hlutum vegarins er það lítill að vegfarendum stafar ekki hætta af.


Hálkublettir:
Hált vegyfirborð sem er hulið ís eða þjöppuðum snjó á allt að 20% af lengd vegarkaflans.


Hált:
Hált vegyfirborð sem er hulið þurrum ís eða snjó á meira en 20% af lengd vegarkaflans.


Flughált:
Ísing (glæra) eða vegyfirborð hulið blautum ís eða blautum þjöppuðum snjó á meira en 20% af lengd vegarkaflans.


Krap/snjór:
Vegyfirborð þakið að hluta eða öllu leyti með allt að 10 cm þykkum vatnsmettuðum eða lausum/lítið þjöppuðum snjó.


Þæfingur:
Vegyfirborð þakið að hluta eða að öllu leyti með 10-20 cm lausum eða lítið þjöppuðum snjó og/eða stökum minni háttar sköflum og færð þannig að ekki telst öruggt færi nema fyrir fólksbifreiðar með drif á öllum hjólum.


Þungfært:
Vegyfirborð þakið af snjó með þykkt meiri en 20 cm og/eða stökum sköflum og færð þannig að ekki telst öruggt færi nema fyrir jeppa og stærri ökutæki.


Ófært:
Snjóþyngsli það mikil að ekki telst fært fyrir almenn ökutæki. Þessi lýsing á einnig við þegar vegur er ófær af öðrum ástæðum eins og skriðuföllum, vatnsflóðum o.þ.h.

Ásþungi/heildarþungi 10t og 7t/5t/2t: Takmörkun á þunga ökutækja (einkennt með ásþungamerki B18.xx)

Vegavinna: Vegavinna/brúarvinna á vegi eða kafla og þess eðlis að ástæða er til að vara vegfarendur við og hvetja til aðgæslu (einkennt með vegavinnumerki A17.11)

Ósléttur vegur: Vegur eða vegarkafli það ósléttur að ástæða er til að vara vegfarendur við (einkennt með öldumerki A20.11)

Steinkast: Yfirborð vegar eða vegarkafla með lausri möl og hætta á steinkasti (einkennt með steinkastmerki A22.11)

Allur akstur bannaður:Vegi eða vegkafla lokað fyrir allri umferð ökutækja m.a. til að verja hann skemmdum (einkennt með merkinu allur akstur bannaður B01.11)

Skilgreiningar á aðstæðum.

Óveður: Vindhraði 19 m/sek (hvassviðri, 37 hnútar) eða meiri eða vindhviður eru meiri en 26 m/sek (51 hnútur).

Snjókoma: Snjókoma það mikil að vegsýn er skert að einhverju leyti og/eða hætta er á að færð geti þyngst á næstu klukkustundum.

Skafrenningur: Laus snjór og vindhraði meiri en 11 m/sek (kaldi, 18 hnútar) og snjófok það mikið að vegsýn er að einhverju leyti skert og/eða hætta er á að færð geti þyngst á næstu klukkustundum.

Stórhríð: Vindhraði 16 m/sek eða meiri (allhvass, 30 hnútar) og ofankoma, erfitt ferðaveður og mikil hætta á að færð geti þyngst á skömmum tíma.

Éljagangur: Talsverð ofankoma og fjúk getur verið í éljunum en á milli er mun bjartara veður og betra skyggni.

Þoka: Dimm þoka með það skertri vegsýn að m.t.t. umferðaröryggis er talin ástæða til að vara ökumenn við.

Mokstur: Unnið að mokstri.

Fært fjallabílum: Þessi skráning er eingöngu notuð þegar búið er að opna fjallvegi og hliðstæða vegi (t.d. Sprengisandsleið, veg í Laka o.s.frv.) og þá fyrir þær leiðir þar sem ekki er talið ráðlegt að fara um á fólksbílum.

Ekki vitað: Ekki vitað um færð.


 

 

Stoðval


Text Size Controls

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.