Umsóknir um rannsóknastyrki
Frestur til að sækja um fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2012, rann út að kvöldi 1. febrúar 2012.
Umsækjendur eiga að hafa fengið sendan tölvupóst til staðfestingar á móttöku umsókna og að hún verði tekin til athugunar og svör berist í tölvupósti þegar ákvörðun liggur fyrir. [Ath. Telji einhver sig hafa sent inn umsókn, án þess að hafa fengið slíkt svar er viðkomandi beðinn um að hafa samband við Þórir Ingason (thorir.ingason@vegagerdin.is)].
Umsækjendur fá svör við umsóknum sínum þegar úthlutun er lokið (væntanlega í byrjun mars 2012). Upplýsingar um verkefni sem fá styrk er hægt að finna undir hlekknum "Rannsóknaverkefni" hér til vinstri.

