Almenn verkefni 2021
Almenn verkefni 2021
Heiti verkefnis : | Vegveðurspáyfirlit fyrir vetrarþjónustu Vegagerðarinnar | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Margir veðurþættir hafa áhrif á færð og öryggi á vegum. Veðrátta telst sem einn alvarlegasti þáttur sem hefur áhrif á samgöngur, ekki síst á norðurslóðum. Annar jafn mikilvægur þáttur er mannlegi þátturinn, þ.e. mannleg mistök og vitund um aðstæður á vegum. Þessir tveir þættir, veðurfar og mannleg mistök hafa í sameiningu stigvaxandi áhrif á öryggi, ekki bara á vegum en almennt séð í öllum samgöngum, lofti sem láð.
| ||
Tilgangur og markmið: | ||
Að auðvelda spáyfirsýn yfir veðurspáþætti meðfram helstu vegakerfum landsins sem hafa áhrif á ákvarðanir í tengslum við vetrarþjónustu Vegagerðarinnar. Þróað verður viðmót sem sýnir litakóðað: Grænt, gult og rautt, alvarlegustu svæðin meðfram vegum landsins þar sem þarf að huga að snjóruðningi og söltun í samræmi við bestu mögulegu spágögn Veðurstofu Íslands. Í viðmótinu verður hægt að skoða ítarlega hvaða veðurspáþættir hafa áhrif á færð á einstaka vegköflum. Tilgangurinn er að auðvelda til muna yfirsýn yfir hættur á vegum fram í tímann í samræmi við bestu mögulegu spágögn Veðurstofu Íslands.
|