Almenn verkefni 2021

Heiti verkefnis : 

Basalttrefjar til styrkinga í sprautusteypu

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Stefnt er að því að prófa að sprauta basalttrefja styrktri sprautusteypu á verkstað í samvinnu við Vegagerðina
og skoða hvernig 2-3 mismunandi gerðir basalttrefja hegða sér í sprautusteypu. Mæld verður orkugleypni og
beygjutogþol á sprautaðri steypu, úr blöndum sem hafa áður verið prófaðar á rannsóknarstofu og niðurstöður
bornar saman ásamt því að skoða frákast og áhrif trefja á sprautun og viðloðun við styrkingar. Helsta ástæða
þess að skoða notkun basalttrefja er að með þeim á að vera hægt að fá kosti plasttrefja án plastmengunar í
nærumhverfið og kosti stáltrefja án mögulegra tæringarvanda.

Sótt var um styrk fyrir þessu verkefni á síðasta ári líka, en sökum anna verkefnastjóra og þess að ekki var verið að nota mikið af sprautusteypu síðustu 12 mánuði hófst vinna við þetta verkefni ekki, því er verið að sækja um verkefnið aftur.

Tilgangur og markmið:

 

Markmið rannsóknarinnar eru að taka niðurstöður prófana á basalttrefjum sem hafa verið gerðar á
rannsóknarstofu og prófa trefjarnar á verkstað. Stefnt verður á að prófa tvær til þrjár gerðir basalttrefja í
sprautusteypu á verkstað í samvinnu við Vegagerðina eða annan verkkaupa í verkefni þar sem verið er að nota
sprautusteypu. Skoðaðir verða eiginleikar trefjanna í ferskri steypunni við sprautun og dælingu, ásamt því að
framleiða sýni til að prófa brotorku og beygjutogstyrk. Samhliða því að skoða jákvæð umhverfisáhrif trefjanna
verður gerður samanburður á kostnaði basalt-, stál- og plasttrefja. Að lokum verður gerð könnun á
möguleikum framleiðslu basalttrefja á Íslandi.