Almenn verkefni 2019

Heiti verkefnis : 

Efnisgæðaritið - leiðbeiningar um efnisrannsóknir og efniskröfur

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Haldið verður áfram vinnu við að skrifa og endurskoða Efnisgæðaritið "Efnisrannsóknir og efniskröfur- leiðbeiningar við hönnun, framleiðslu og framkvæmd". Nauðsynlegt er að endurskoða kafla 1-7 og viðauka 1-10 árlega. Fylgistaðlar ÍST 75 (malbik) og ÍST 76 (steinefni) verða endurskoðaðir í kjölfar þess að lokið er endurskoðun Evrópustaðla um malbik og steinefni. Mikilvægt er að áfram verði staðið myndarlega að skrifum á Efnisgæðaritinu og stöðugri uppfærslu þess enda er ritið mikilvægur farvegur til birtingar og útfærslu (e. implementation) á grundvelli rannsóknarniðurstaðna og nauðsynlegt að þar séu ávalt birtar nýjustu upplýsingar um efnisrannsóknir og efniskröfur. Vinna við leiðbeiningaritið nýtist vel við endurskoðun á leiðbeiningum um gerð útboðsgagna þ.e. nýs "Alverks" og þarf stöðugt að gæta þess að samræmi sé í öllum ákvæðum beggja rita.

Tilgangur og markmið:

 

Efnisgæðaritið, sem er á vefsíðu Vegagerðarinnar, er yfirgripsmikið rit með ítarlegum upplýsingum um flesta þætti sem varða þau efni sem notuð eru við vegagerð svo sem steinefni, malbik og steinsteypu. Leiðbeiningunum er ætlað að vera stuðningsrit við "nýtt Alverk" en í ritinu eru þó mun ítarlegri upplýsingar um efnisrannsóknir en þær sem veittar eru í verklýsingum Vegagerðarinnar. Mikilvægt er að halda áfram vinnu við að semja leiðbeiningarnar og endurskoða þannig að allar nýjustu upplýsingar um efnismál séu tiltækar við gerð Alverks. Mikilvægt er að hafa í huga að þetta rit verður í stöðugri endurskoðun á næstu árum eftir því sem þekkingu fleygir fram, sem grundvallast m.a. á rannsóknum Vegagerðarinnar.