Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2005
Ráðstefna haldin á Hótel Nordica í Reykjavík þann 11. nóvember 2005
Þróunarsvið Vegagerðarinnar stóð fyrir ráðstefnu um rannsóknir 11. nóvember 2005, á Hótel Nordica. Ráðstefnan fjallaði að þessu sinni að mestu um rannsóknir sem fengu fjárveitingu úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2004.
Í setningarávarpi Hreins Haraldssonar, framkvæmdastjóra Vegagerðarinnar, kom fram að þetta væri fjórða rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar á jafn mörgum árum og sú lang fjölmennasta til þessa, með yfir 180 þátttakendum. Fullyrða mætti að ráðstefnan hefði unnið sér fastan sess í starfsemi stofnunarinnar. Bent var á að kveðið væri á í vegalögum að 1% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs. Ráðstefnan endurspeglar afrakstur hluta þessa rannsóknar- og þróunarstarfs.
Meðfylgjandi er dagskrá ráðstefnunnar og ágrip flestra fyrirlestranna.
| 09:00 - 09:15 | Setning (Hreinn Haraldsson, Vegagerðin) | |
|
Samgöngu- og umferðarrannsóknir
|
||
| 09:15 - 09:30 | Samanburður á beinni gjaldtöku og samfélagslegum kostnaði við flutninga (Axel Hall, Hagfræðistofnun HÍ) |
|
| 09:30 - 09:45 | Áhrifasvið höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða (Bjarni Reynarsson, Land-ráð sf) |
|
| 09:45 - 10:00 | Hringtorg – hönnun og umferðaröryggi (Haraldur Sigþórsson og Bryndís Friðriksdóttir, Línuhönnun) |
|
|
Upplýsingatækni og hugbúnaðargerð
|
||
| 10:00 - 10:15 | Hagnýting gagna úr umferðargreinum (Sigurður Erlingsson, Verkfræðistofnun HÍ) |
|
|
Tæki og búnaður
|
||
| 10:15 - 10:30 | Víravegrið: Uppsetning, kostnaður og snjósöfnun (Daníel Árnason, Vegagerðin og Skúli Þórðarson, Orion-Ráðgjöf) |
|
|
Umferðaröryggi
|
||
| 10:50 - 11:05 | Slysatíðni vöru- og hópbifreiða (Skúli Þórðarson, Orion ráðgjöf) |
|
| 11:05 - 11:20 | Vegarollur og umferðaröryggi (Ólafur Páll Vignisson, laganemi við Háskóla Íslands) |
|
| 11:20 - 11:35 | Umferðarslys erlendra ferðamanna (Ágúst Mogensen, Rannsóknanefnd umferðarslysa) |
|
| 11:35 - 11:50 | Aukið aðhald – Aukið umferðaröryggi (ND á Íslandi) |
|
| 11:50 - 12:00 | Umræður / fyrirspurnir um erindi fyrir hádegi | |
|
Umhverfismál
|
||
| 13:00 - 13:15 | Aðferðir til þess að meta landslag (Ólafur Árnason, Línuhönnun) |
|
| 13:15 - 13:30 | Umhverfis-, öryggis- og heilsumál í útboðsgögnum Vegagerðarinnar (Helga J. Bjarnadóttir, Línuhönnun) |
|
| 13:30 - 13:45 | Áhrif brúa- og ræsagerðar á ferðir ferskvatnsfiska (Bjarni Jónsson, Veiðimálastofnun) |
|
|
Vatnafar, snjór, jöklar, jökulhlaup
|
||
| 13:45 - 14:00 | Landris í nágrenni Vatnajökuls (Freysteinn Sigmundsson, Jarðvísindastofnun HÍ) |
|
| 14:00 - 14:15 | Strandrof og strandvarnir við brúna yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi (Helgi Jóhannesson, Vegagerðin og Sigurður Sigurðarson Siglingastofnun) |
|
| 14:15 - 14:30 | Kötluhlaup niður farveg Markarfljóts (Sigurður Lárus Hólm, Verkfræðistofan Vatnaskil) |
|
| 14:30 – 14:45 | Handbók um snjóhönnun vega (Skúli Þórðarson, Orion-Ráðgjöf) |
|
|
Upplestur úr glæpasögu
|
||
| 15:15 - 15:30 | Afturelding (höfundur, Viktor Arnar Ingólfsson, les úr nýútgefinni bók sinni) |
|
|
Jarðtækni og Steinefni, burðarlög og slitlög
|
||
| 15:30 - 15:45 | Kortlagning á sigi á Siglufjarðarvegi um Almenninga (Þorsteinn Sæmundsson, Náttúrustofa Norðurlands vestra og Halldór G. Pétursson, Náttúrufræðistofnun Íslands) |
|
| 15:45 - 16:00 | Petroscope, ljóstæknileg aðferð við berggreiningu og mælingu á kornadreifingu og lögun steinefna (Þorgeir Helgason, Petromodel ehf) |
|
| 16:00 - 16:15 | Steinefni í vegagerð, mat á efniskröfum og greining fínefna (Pétur Pétursson, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins) |
|
|
Brýr og steinsteypa
|
||
| 16:15 - 16:30 | Jarðskjálftasvörun brúa á stauraundirstöðum (Bjarni Bessason, Háskóla Íslands) |
|
| 16:30 - 16:45 | Skrið í íslenskri steinsteypu (Guðni Jónsson, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins) |
|
| 16:45 - 17:00 | Umræður / fyrirspurnir um erindi eftir hádegi | |
|
17:00 Ráðstefnuslit
|
||

