• Malbikun í Ártúnsbrekku

Málþing um Evrópustaðla fyrir malbik 18. apríl 2008

Vegagerðin í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir málþingi um upptöku Evrópustaðla fyrir malbik. Erindi flytja nefndarmenn í CEN/TC 227/ WG1 (Road materials – bituminous mixtures).

Evrópustaðlar fyrir malbik tóku gildi 1. mars síðastliðinn í aðildarlöndum EES. Málþingið er ætlað malbiksframleiðendum, verktökum, veghönnuðum, eftirlitsmönnum í vegagerð og öðrum sem vilja kynna sér nýju malbiksstaðlana en Vegagerðin vinnur nú að því að samræma verklýsingar í vegagerð Evrópustöðlunum.

Málþingið fer fram á Radisson SAS Hótel Sögu þann 18. apríl 2008 kl. 8:30 - 12:00 og eru hagsmunaaðilar hvattir til að mæta.

Þátttökugjald kr. 2000 verður innheimt við innganginn en reikningur verður sendur ef þess er óskað.

Þátttöku skal tilkynna til Péturs Péturssonar á Nýsköpunarmiðstöð Íslands eða til Gunnars Bjarnasonar Vegagerðinni.

Chairman: Cliff Nicholls, formaður nefndar um prófunarstaðla

Dagskrá:

08:30 -09:15 Egbert Beuving, formaður CEN/TC 227/ WG 1 (bituminous mixtures) Overview on the Bituminous Mixtures Standards
09:15 - 09:45 Jan van der Zwan, formaður nefndar um framleiðslustaðla Personal perspective on the new standards
09:45 - 10:00 Bo Simonsson Implementation of the Bituminous Mixtures Standards in Sweden
10:00 - 10:10 Discussion
10:10 - 10:30 Coffee
10:30 - 10:45 Maria da Conceicao Azevedo Implementation of the Bituminous Mixtures Standards in Portugal
10:45 - 11:00 Nils Uthus Implementation of the Bituminous Mixtures Standards in Norway
11:00 - 11:15 Rauno Turunen Implementation of the Bituminous Mixtures Standards in Finland
11:15 - 11:30 Pétur Pétursson Implementation of the Bituminous Mixtures Standards in Iceland
11:30 - 12:00 Discussion