Starfsmannastefna

1. Tilgangur

Tilgangur starfsmannastefnunnar er að gera Vegagerðinni kleift að gegna því hlutverki sem henni er ætlað í samfélaginu. Forsenda þess er að Vegagerðin hafi á að skipa hæfum og metnaðarfullum starfsmönnum sem hafa vilja til að vinna að markmiðum hennar. Er starfsmannastefnunni ætlað að stuðla að því að stofnunin hafi á að skipa starfsmönnum í samræmi við þarfir á hverjum tíma.

Starfsmannastefnan hefur einnig þann tilgang að vera starfsmönnum til hvatningar og upplýsingar um starfsmannamál stofnunarinnar svo að starfsmenn viti til hvers er ætlast af þeim.

2. Stjórnun

Leiðarljós starfsmannastefnunnar eru nútímalegir stjórnunarhættir, virðing fyrir fólki, samvinna og sveigjanleiki, jafnræði, þekking, frumkvæði, þjónustulund og vandaðir vinnuferlar. Stuðla ber að skýrum boðleiðum og virku flæði upplýsinga milli starfsmanna og starfshópa. Allar almennar upplýsingar um stefnu og starfsemi Vegagerðarinnar skulu vera starfsmönnum aðgengilegar. Allir starfsmenn skulu eiga möguleika á aðgangi að tölvu á föstum vinnustað.

Yfirmenn hafa þá skyldu að hafa í heiðri starfsmannastefnuna og sjá til þess að farið sé að reglum og fyrirmælum á sviði starfsmannamála, bæði með tilliti til hagsmuna stofnunarinnar og starfsmannsins. Löggjöf á hverjum tíma, reglur, fyrirmæli og kjarasamningar mynda ramma um ákvarðanir um starfsmannamál. Það er stefna Vegagerðarinnar að virða í hvívetna lagalegar og samningsbundnar skyldur sínar á sviði starfsmannamála og fara eftir reglum og kjarasamningum sem gilda hverju sinni.

Yfirmaður skal a.m.k. einu sinni á ári taka starfsmannasamtal við hvern starfsmann og um það hefur verið sett verklagsregla 13.2.02.

Til að stjórna starfsmannamálum Vegagerðarinnar setur vegamálastjóri eða starfsmannadeild í umboði hans þær reglur sem nauðsynlegar eru. Reglur um starfsmannamál eiga að endurspegla stefnu stofnunarinnar í starfsmannamálum.

3. Ráðningar og starfslok

Þegar störf losna eða nauðsynlegt er að stofna nýtt starf er mikilvægt að hæfur starfsmaður fáist til að gegna starfinu eins fljótt og unnt er. Starfslýsing skal fylgja hverjum ráðningarsamningi. Almennt skal auglýsa laus störf til umsóknar í þeim tilgangi að starfsmaður með fullnægjandi menntun og hæfni fáist til starfa og til að gefa sem flestum færi á að leggja inn umsókn. Leitast skal við að verða við óskum starfsmanna um flutning milli starfa eftir því sem kostur er. Heimilt er að breyta verksviði starfsmanna samkvæmt 19. gr. laga nr. 70/1996 (starfsmannalög) og þar með færa starfsmenn til. Sjá dreifibréf nr 1/2004 frá starfsmannaskrifstofu fjármálaráðuneytis um framkvæmd og túlkun á 19. grein laga nr. 70/1996.

Ákvörðun um ráðningu starfsmanns skal ávallt vel ígrunduð og tekin með málefnalegum hætti og í samræmi við gildandi reglur. Ráða skal hæfasta umsækjanda sem völ er á í starf hverju sinni og tryggja jafnrétti við ráðningar. Almennt eru ráðningarsamningar ótímabundnir. Tímabundnar ráðningar skulu því aðeins notaðar þegar það á við eðli máls samkvæmt. Ferli ráðninga og starfslok eru skilgreind nánar í verklagsreglum

Samkvæmt lögum skal ríkisstarfsmaður að jafnaði láta af störfum í síðasta lagi í lok þess mánaðar sem hann verður 70 ára. Stuðla skal að því að starfsmenn geti undirbúið starfslok vegna aldurs, t.d. með því að minnka við sig vinnu eða breyta um starf áður en að starfslokum kemur. Gefa skal starfsmanni kost á starfslokasamtali.

4. Starfsmaðurinn

Starfsmenn skulu fylgja reglum sem í gildi eru og lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinna. Sjá siðareglur Vegagerðarinnar

Vegagerðin leggur ríka áherslu á góðan starfsanda á vinnustað. Góður starfsandi eykur starfsgleði og árangur starfsmanna og gerir Vegagerðina eftirsóknaverðan vinnustað. Starfsmenn skulu sýna hver öðrum virðingu og jákvætt viðmót í öllum samskiptum. Starfsmenn skulu vera reiðubúnir til að vinna saman að sameiginlegum markmiðum og er stefnt að því að á meðal starsmanna ríki góður liðsandi. Vegagerðin styður félagsstarf starfsmanna með það að markmiði að efla samkennd og samstöðu þeirra á meðal og stuðla að kynnum starfsmanna á viðfangsefnum og starfsvettvangi starfsfélaga sinna. Nauðsynlegt er að bregðast strax við neikvæðu viðmóti starfsmanns gagnvart samstarfsmönnum. Atferli eins og kynferðislegriáreitni og einelti telst alvarlegt brot og meðhöndlast í samræmi við það. Um meðferð mála vegna eineltis, kynferðislegri áreitni eða annarar ótilhlýðilegrar háttsemi hjá Vegagerðinni skal fara eftir verklagsreglu nr. 13.3.03.

Starfsmenn gæti eins og kostur er að eigin heilsufari og styður Vegagerðin viðleitni starfsmanna til að efla heilsu og vellíðan með ástundun líkamsþjálfunar. Starfsmenn bera sjálfir ábyrgð á vandamálum vegna notkunar áfengis og vímuefna. Vegagerðin gefur starfsmönnum tækifæri til að leita sér hjálpar vegna vandamála sem tengjast notkun áfengis og vímuefna.

5. Kjaramál og vinnutími

Launakjör og önnur starfskjör starfsmanna fara eftir gildandi kjarasamningum, lögum og reglum sem í gildi eru á hverjum tíma. Ákvarðanir um launakjör starfsmanna skulu að öðru leyti taka mið af því markmiði að Vegagerðin geti haft á að skipa starfsfólki með þá menntun og reynslu, sem hún þarf á að halda hverju sinni. Til að þessu markmiði verði náð er nauðsynlegt að stjórnendur Vegagerðarinnar séu meðvitaðir um launakjör á hinum almenna vinnumarkaði og leitast sé við að bjóða viðlíka kjör. Stefnt er að því að ákvarðanir um launakjör starfsmanna taki mið af ábyrgð, frammistöðu og árangri í starfi. Gerðir skulu fastlaunasamningar við hópa starfsmanna þar sem það hentar. Við ákvörðun launa og annarra starfskjara skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað.

Starfsmenn skulu eiga rétt á sveigjanlegum vinnutíma eftir því sem unnt er. Vinnutími starfsmanna skal taka mið af því að þeir geti samræmt kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Stefnt er að því að draga úr yfirvinnu starfsmanna sé þess kostur án þess að það komi niður á starfsemi stofnunarinnar. Óreglulegur vinnutími, s.s. vaktavinna, er í sumum tilvikum nauðsynlegur vegna starfseminnar. Stefnt skal að því að skipulag vaktavinnu sé með þeim hætti að óæskileg áhrif hennar á starfsmenn séu sem minnst.

Starfsmanni er heimilt að vinna heima með leyfi yfirmanns, gæta skal hófs í því sambandi en skoða hvert tilfelli með jákvæðum huga. Ekki er æskilegt að starfsmaður vinni heima samhliða orlofi eða í fæðingar- og foreldraorlofi þótt slíkt geti hentað í undantekningartilvikum.

6. Símenntun og starfsþróun

Stefnt er að því að efla og styrkja starfsmenn með því að sjá þeim fyrir fræðslu, þjálfun og endurmenntun sem þeim er nauðsynleg til að sinna starfi sínu og vinna að markmiðum Vegagerðarinnar. Fræðsla, þjálfun og endurmenntun skal stuðla að því að starfsmenn verði betur í stakk búnir til að takast á við núverandi eða ný og breytt verkefni á starfssviði sínu og séu hæfari til að mæta breytingum, s.s. að skipta um starfsvettvang.

Mikilvægt er að þörfum mismunandi starfshópa fyrir fræðslu, þjálfun og endurmenntun verði sinnt á markvissan hátt. Það er jafnt á ábyrgð starfsmanna og stjórnenda að tryggja að starfs- og endurmenntun sé sinnt sem skyldi.

Starfsmenn eiga að vera undir það búnir að breytingar geti orðið á starfi og starfsvettvangi með tilliti til verkefna og vinnuaðferða. Yfirmenn skulu ræða starfsmannatengd mál við starfsmenn á opinn og hreinskilinn hátt og til að fylgja eftir stefnu og markmiðum Vegagerðarinnar ásamt persónutengdum markmiðum starfsmanns. Til að fylgja eftir markmiðum um símenntun og starfsþróun hafa verið settar verklagsreglur.

7. Jafnrétti

Gæta skal fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður verði metinn á eigin forsendum. Þess skal gætt að jafnræðisreglu sé fylgt í hvívetna en í því felst að óheimilt er að mismuna starfsfólki, t.d. eftir aldri eða kynferði. Með þessu á að vera tryggt að mannauður Vegagerðarinnar nýtist sem best. Kynbundin mismunun er óheimil í hvaða formi sem hún birtist og það er stefna Vegagerðarinnar að útrýma slíkri mismunun komi hún í ljós. Það er stefna Vegagerðarinnar að hlutur kvenna í störfum hjá stofnuninni aukist. Jafnréttisáætlun er aðgengileg í gæðahandbók stofnunarinnar.

8. Vinnuvernd, umhverfis- og öryggismál

Vegagerðin vill búa starfsmönnum sínum heilsusamlegt og gott umhverfi, og skapa þar með vinnuaðstæður sem stuðla að velferð og árangri í starfi. Það er stefna Vegagerðarinnar að fylgja í hvívetna lögum og reglum um vinnuvernd, umhverfis- og öryggismál á vinnustað. Öryggisstefna er aðgengileg í gæðahandbók stofnunarinnar. Til að fylgja eftir þessari stefnu er sérstakur ráðgjafahópur um umhverfismál og umhverfis- og öryggisnefndir eru starfandi í miðstöð og á svæðum. Nauðsynlegt er að starfsmenn séu meðvitaðir um umhverfis- og öryggismál á vinnustað og hafi tækifæri til að koma á framfæri ábendingum og tillögum til úrbóta varðandi heilsu og velferð starfsmanna. Það er stefna Vegagerðarinnar að taka fullt tillit til slíkra ábendinga sem til framfara geta orðið. Vegagerðin, yfirmenn og aðrir starfsmenn bera ábyrgð á að farið sé eftir reglum um vinnuvernd, umhverfis- og öryggismál á vinnustað. Settar hafa verið verklagsreglur um öryggismál. Öryggisverðir og öryggistrúnaðarmenn eiga að leiðbeina um öryggismál og fylgjast með að þau séu í lagi á hverjum vinnustað. Ef einhver vafi leikur á að ástand öryggismála sé í lagi skal hafa samband við Vinnueftirlitið og fá fulltrúa þess á staðinn.

Reykingar eru bannaðar í áhaldahúsum, skrifstofuhúsnæði, verkstæðum og öðru húsnæði Vegagerðarinnar. Reykingar eru bannaðar í bifreiðum og tækjum Vegagerðarinnar. Svæðisstjórar eða yfirstjórn geta ákveðið í samráði við umhverfisnefndir, öryggisverði og trúnaðarmenn, að leyfa megi reykingar í sérstökum, vel loftræstum afdrepum sem ætluð eru til reykinga. Heimilt er að reykja á lóðum Vegagerðarinnar nema öryggissjónarmið mæli gegn því. Þeir sem reykja verða að taka fullt tillit til samstarfsmanna sem ekki reykja.

Útgáfudagur: 14.04.2008



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica