Umferðarþjónusta - Tilkynning - 8.11.2018

Kolbrún Benediksdóttir 2018-11-08 22:01

Færð og aðstæður


Vestfirðir: Hálkublettir eru á flestum fjallvegum og norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði og nokkrum útvegum en allar aðalleiðir eru greiðfærar.

Norðausturland: Hálka er í Bárðardal en hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Dettifossvegi. 

Austurland: Hálka er á Mjóafjarðarheiði.

Umferðartafir í Hvalfjarðargöngum

Búast má við minniháttar töfum í Hvalfjarðargöngum í nótt, aðfaranótt 9. nóv. frá miðnætti og fram undir morgun vegna hreinsunar á vegbúnaði. Vegfarendur eru beðnir um að sína aðgát og tillitsemi.

Umferðartafir við Svínafellsá í Öræfum

Vegna vinnu við endurbætur á brúnni yfir Svínafellsá í Öræfum það verða smávægilegar tafir í dag og fram að hádegi á morgun og eins á mánudag. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag má síðan búast við talsverðum umferðartöfum allt að 40 mínútum i senn og verður umferð stýrt með umferðarljósum i gegnum vinnusvæðið

Umferðartafir við Vaðlaheiðargöng

Næstu tvo daga standa yfir malbikunarframkvæmdir á Hringvegi 1 beggja vegna Vaðlaheiðarganga. Á meðan á framkvæmdunum stendur er hámarkshraði færður niður í 30 km/klst öryggisins vegna. Umferð um Hringveginn verður stjórnað með umferðarljósunum og einungis ein akbraut í notkun.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Það standa yfir framkvæmdir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Aukin þjónusta á Hrafnseyrarheiði

Vegna framkvæmda við Dýrafjarðargöng verður tímabundið aukin vetrarþjónusta á Hrafnseyrarheiði í tvær til þrjár vikur. Á Dynjandisheiði verður minni þjónusta. Vegfarendur eru beðnir um að athuga færðarskráningu áður en lagt er af stað.

Hálendið

Engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.