Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2018
Þjóðvegur 1 er opinn
Búið er að opna þjóðveg 1 milli Núpsstaða og Jökulsárslóns.Færð og aðstæður
Vesturland: Hálka eða snjóþekja á flestum fjallvegum og skafrenningur.
Vestfirðir: Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum og skafrenningur. Dynjandisheiði er ófær.
Norðurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum. Skafrenningur er á Öxnadalsheiði og éljagangur í Eyjafirði.
Norðausturland: Hálka eða snjóþekja er á vegum og skafrenningur víðast hvar og blint. Dettifossvegur er lokaður.
Austurland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum. Ófært er á Vatnsskarði eystra og Fjarðarheiði hefur nú verið lokað. Einnig er lokað um Breiðdalsheiði og Öxi.
Suðausturland: Víðast hvar greiðfært en mikill vindur.
Suðurland: Víðast hvar greiðfært en nokkuð hvasst.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa lónsins. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.