Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.4.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Í dag, föstudag verða hægfara kuldaskil yfir suðvestanverðu
landinu. Með þeim krapi og sums staðar hálka s.s. á Hellisheiði. Hins
vegar kólnar hratt undir kvöld á milli kl. 16 og 19 gæti hæglega snjóað á
láglendi, líkt og gerði í gær. Einkum í lágsveitum Suðurlands,
Suðurnesjum, á Höfuðborgarsvæðinu og vestur um í Borgarnes að telja.
Færð og aðstæður
Í öllum landshlutum eru langflestir vegir nú auðir en þó er krapi á Fróðárheiði. Á Vestfjörðum eru hálkublettir eða hálka er á fjallvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Hálka er á Hrafnseyrarheiði en þæfingsfærð á Dynjandisheiði en mokstur stendur þar yfir. Hálkublettir eru einnig á Mjóafjarðarheiði.Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar. Því þarf
að takamarka umferðarhraða á vinnusvæðinu við 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að
stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í stutta stund (2-3 mínútur í senn), allt að þrisvar
sinnum á dag.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegar á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna
lagnaframkvæmda. Umferð er
vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní. Sjá nánar hér.
Hálendisvegir að vori
Þegar frost er að fara úr jörð getur jarðvegur orðið mjög gljúpur og viðkvæmur. Þetta á m.a. við um lélega malarvegi og frumstæða slóða líkt og á hálendinu. Akstur er þá bannaður til að koma í veg fyrir skemmdir, bæði á vegunum sjálfum og landi og gróðri sem geta skemmst illa ef ekið er út fyrir veg. Akstursbann hefur nú verið sett á fáeina vegi eins og sjá má á færðarkortinu.
Þungatakmarkanir
Ásþungi er takmarkaður við tvö tonn á Bíldudalsvegi
(63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar en sjö tonn á Vestfjarðavegi (60) milli
Flókalundar og Þingeyrar. Einnig er ásþungi takmarkaður við 2 tonn á Langanesvegi (1036).
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.