Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.3.2017

Jón Hálfdán Jónasson 2017-03-28 14:00

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Vesturlandi en á Vestfjörðum er sumstaðar snjóþekja, hálka eða hálkublettir á heiðum og hálsum  en að mestu autt á láglendi.

Á Norðurlandi er víðast greiðfært en hálkublettir eru sumstaðar á Norðausturlandi og á fjallvegum á Austurlandi.

Vegir eru auðir á Suðausturlandi.


Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi í Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.