Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.4.2018

Sveinfríður Högnadóttir 2018-04-26 17:51

Færð og aðstæður

Vegir eru víðast hvar greiðfærir á láglendi en hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum. Hálka er á Vatnsskarði eystra, krapi er á kafla á norðanverðu Snæfellsnesi og einnig á Þröskuldum.  Þæfingsfærð er yfir í Mjóafjörð.

Sumarvegir eru flestir ófærir og þar er sums staðar akstursbann vegna hættu á skemmdum.

Næturlokun í Hvalfjarðargöngum

Hvalfjarðargöng verða lokuð yfir nóttina þessa viku, vegna viðhalds og þrifa. Lokað verður frá miðnætti til kl. 6 að morgni fram á föstudagsmorgun.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.