Umferðarþjónusta - Tilkynning - 23.1.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi 23. janúar kl. 16:00
Spáin fyrir Austfirði hefur nú versnað. Þar er nú
reiknað með umtalsverðri snjókomu og miklu hríðarveðri, einkum á
fjallvegunum. Vakin er athygli á snjóflóðahættu til fjalla á
Austfjörðum. Einnig snjóar samfara allhvössum vindi norðaustanlands allt
vestur í Eyjafjörð og á Öxnadalsheiði.
Lokanir
Vegirnir um Öxnadalsheiði og Víkurskarð eru lokaðir einnig er lokað yfir Mývatns - og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði.
Færð og aðstæður
Vetrarfærð
er á vegum á Suðurlandi, hálkublettir, hálka, snjóþekja eða krapi.
Hálka eða snjóþekja er víða á Vesturlandi. Þungfært er á Fellsströnd og á
Skarðsströnd. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er víðast hálka eða snjóþekja og éljagangur. Þæfingsfærð og óveður er á Hálfdán, Mikladal og Klettsháls. Flughálka er í
Gufudalssveit.
Hálka og snjóþekja er á flestum vegum á Norðurlandi, snjókoma eða él og
skafrenningur og versnandi veður. Búið er að loka Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Ófært er um
Dalsmynni, Hólasand og Dettifossveg en þungfært inn í Fnjóskadal.
Mývatns- og
Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði eru lokaðar.
Hálka eða snjóþekja og éljagangur eða skafrenningur er á Austurlandi og
versnandi veður. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Vopnafjarðarheiði og á
Fagradal. Fjarðarheiði er ófær og þar er blindbylur. Ófært er einnig á
Vatnsskarði eystra, Breiðdalsheiði og Öxi.
Hálka eða hálkublettir er á Suðausturlandi.