Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.2.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi, 22. feb. kl. 09:45.
Myndarlegir éljabakkar nálgast úr vestri og með þeim hvessir með S 15-20 m/s. Einkum V-lands, en einnig SV-lands má reikna með að blint verði í hryðjunum frá því um hádegi. SV-lands hlánar síðan í kvöld.
Færð og aðstæður
Snjóþekja, hálka eða hálkublettir eru á Suð-vestanverðu landinu. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði og á Krýsuvíkurvegi og víða éljagangur.
Á Vesturlandi er snjóþekja, hálka eða hálkublettir og éljagangur nokkuð víða. Þæfingsfærð er á Svínadal og milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar en þungfært er um Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum er víða Snjóþekja, hálka eða hálkublettir. Þæfingsfærð er Steingrímsfjarðarheiði, Þröskulda, Gemlufallsheiði og í Súgandafirði en þungfært er á Hálfdán, Mikladal og á Klettshálsi.
Það er hálka og hálkublettir á vegum á Norðurlandi vestra. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxnadalsheiði en þungfært er orðið á Þverárfjalli.
Á Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálkublettir yfir Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fagradal, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði. Einnig er greiðfært með suðausturströndinni að Jökulsárlóni en þar fyrir vestan eru hálkublettir,hálka og éljagangur.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Grjóthrun í Hvalnesskriðum
Vegna mikillar úrkomu hefur verið töluvert grjóthrun í Hvalnesskriðum og eru vegfarendur beðnir að fara varlega.Vatnavextir í Fáskrúðsfirði
Vatn flæðir yfir veg á þremur stöðum í sunnanverðum Fáskrúðsfirði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og fara varlega.Þungatakmarkanir
Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu nema á Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.