Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.1.2019
Færð og aðstæður
Yfirlit: Almennt er vetrarfæri á landinu, hálka eða snjóþekja á flestum leiðum en sumstaðar éljagangur.Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir eru á stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flest öllum vegum. Þæfingsfærð er í Kjósarskarði.
Vesturland: Víðast hvar hálka eða snjóþekja og éljagangur á Snæfellsnesi og í Dölum.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka á vegum en éljagangur á Mikladal og á Hálfdán. Þungfært er norður í Árneshrepp, en mokstur stendur yfir.
Norðurland: Hálka víðast hvar en snjóþekja á útvegum. Éljagangur er á Þverárfjalli.
Norðausturland: Hálka eða hálkublettir eru á flest öllum vegum en snjóþekja og einhver éljagangur á Möðrudalsöræfum.
Austurland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar en éljagangur á Fjarðarheiði og á Fagradal.
Suðausturland: Víðast hvar snjóþekja eða hálka á svæðinu.
Suðurland: Snjóþekja eða hálka á flestum vegum.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.
Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að
Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/
Fjaðrárgljúfur lokað
Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.