Umferðarþjónusta - Tilkynning - 22.10.2018
Færð og aðstæður
Á Suðvesturlandi eru hálkublettir á Hellisheiði, Mosfellsheiði og á Kjósarskarði.
Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum fjallvegum.
Á Norðurlandi er hálka er á Vatnsskarði en hálka og éljagangur á Öxnadalsheiði. Hálkublettir eru á Þverárfjalli.
Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Mývatnsöræfum, Vopnafjarðarheiði, Hólaheiði og Dettifossvegi en hálka er á Möðrudalsöræfum og á Hófaskarði.
Á Austurlandi eru hálkublettir á Fjarðarheiði og Öxi.
Framkvæmdir
Unnið verður við vegrið á Höfðabakka til suðurs í nótt, aðfaranótt 23. október og næstu nætur frá kl.24:00 til kl.06:00. Umferð verður stýrt um vinnusvæðið og er hraði lækkaður í 50 km/klst. vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Þriðjudaginn 23. október frá kl. 09.00 til kl. 13.00 er stefnt að því að malbika hægri akrein á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ, á milli hringtorga við Álafossveg og Reykjavegar. Þrengt verður að umferð og umferðarhraði tekinn niður framhjá vinnusvæðinu. Búast má við einhverjum umferðartöfum.
Einnig er stefnt að því að malbika Álftanesveg við Góu, á milli Reykjanesbrautar og Garðahrauns. Veginum verður lokað og viðeigandi merkingar verða settar upp meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 14:00 til kl. 18:00.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Verið er að breikka og endurbæta Grindavíkurveg á tveimur aðskildum 2 km
köflum. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður.
Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok
2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.Þungatakmarkanir við Hrafnsgerðisá á Upphéraðsvegi
Vegna framkvæmda eru sérstakar þungatakmarkanir á Upphéraðsvegi (931). Heildarþungi er miðaður við 4 tonn á ræsi yfir Hrafnsgerðisá við Droplaugarstaði út október.
Þingvallavegur lokaður
Þingvallavegur (36) er lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361). Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hérHálendið
Vegir eru víða orðnir ófærir á hálendinu en engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.