Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.9.2018

Sveinfríður Högnadóttir 2018-09-21 11:58

Færð

Éljagangur er á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á nokkrum fjallvegum á Vestfjörðum og á Vesturlandi. Ófært er á Strandavegi.

Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðausturlandi. Krapi er á Þverárfjalli, Siglufjarðarvegi og Hólasandi.  Búið er að loka veginum um Lágheiði.

Krapi er á Mývatnsöræfum en hálka á Möðrudalsöræfum. Snjóþekja og éljagangur er á Fjarðarheiði en þungfært er Mjóafjarðarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Öxi.

Hálendi

Búast má við að færð gæti farið að þyngjast á hálendis vegum og þá sérstaklega á norðanverðu landinu.

Framkvæmdir við Esjumela

Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.