Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.8.2017
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Verið er að gera tvö hringtorg á Reykjanesbraut,
annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Umferð hefur verið hleypt á hringtorgið við
Aðalgötu en Aðalgata verður lokuð fram í
byrjun september. Ökumönnum er bent á hjáleið yfir á Þjóðbraut eða að aka um
Garðaveg. Verkinu í heild á að ljúka í
september.
Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í stutta stund, allt að þrisvar sinnum á dag.
Verið er að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.
Borgarfjarðarbrú
Nú er unnið að lokaáfanga gólfviðgerðar á Borgarfjarðarbrú. Umferð er stýrt með ljósum. Verkinu á að ljúka 14. nóvember.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 er opinn að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga. Því er veginum lokað við Ytra Nesgil og öll umferð upp úr Fnjóskadal er bönnuð.