Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.4.2017

Sigfríður Hallgrímsdóttir 2017-04-21 11:57

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er greiðfært á Suðurlandi.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og eins eru víða hálkublettir á heiðum og hálsum á Vestfjörðum.  Snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði og á veginum norður í Árneshrepp. Ófært er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en vegna snjóflóðahættu verður ekki mokað í dag. 

Hálkublettir eru nokkuð víða á Norðurlandi vestra, einkum á fjallvegum. Á Norðausturlandi er hálka eða hálkublettir og snjóþekja á Siglufjarðarvegi. Það er hálka og skafrenningur á Dettifossvegi og á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Það er víða greiðfært á Austurlandi en þó eru hálkublettir á Oddskarði og hálka á Fjarðarheiði.

Greiðfært er með suðausturströndinni.

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir á köflum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Víðast er um að ræða 10 tonna ásþungatakmarkanir en þó er ásþungi takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi (63) frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) við Helluskarð og á Vestfjarðavegi (60) frá Flókalundi að Þingeyri.

Borgarfjarðarbrú

Hlé var gert á vinnu við Borgarfjarðarbrú um páskana og verða báðar akreinar opnar til 23. apríl. Athugið að framkvæmdum er ekki lokið og akreinar eru ekki í fullri vegbreidd. Umferðarstýring er á gulu blikki og hraði takmarkaður við 30 km/klst.  Vinna hefst að nýju mánudaginn 24. apríl.