Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.3.2018
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Hellisheiði, Þrengslum og hálka eða hálkublettir á nokkrum leiðum í uppsveitum Suðurlands en annars eru vegir að mestu greiðfærir á Suðvestur- og Suðurlandi.
Hálkublettir eru nokkrum leiðum á Vesturlandi og Vestfjörðum og éljagangur á Snæfellsnesi. Búið er að opna yfir Hrafnseyrarheiði
en þar er snjóþekja.
Það að mestu greiðfært á Norður- og Austurlandi en
hálkublettir á stöku stað. Greiðfært er með suðausturströndinni.
Slitlagsskemmdir
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á
slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með
ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka
aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.