Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.1.2019

Ingibjörg Daníelsdóttir 2019-01-21 14:18

Breytt veðurútlit suðvestan- og sunnanlands

21. jan. kl.11:30

Sjá má glögglega á ratsjá og tunglmyndum að lægðin með snjó og vindi stefnir til austurs skammt fyrir sunnan land í stað þess að koma inn á Faxaflóa eins og áður var reiknað með. Hittir mögulega á Eyjafjöll og Mýrdal seinnipartinn.   Spá um hríð og skafrenning suðvestan- og og sunnanlands er því afturkölluð.

Færð og aðstæður

Suðvesturland:  Hálkublettir eru á stofnbrautum á Höfuðborgarsvæðinu en annars er hálka eða snjóþekja nánast á öllum vegum. Þæfingsfærð er á Kjósarskarði.

Vesturland: Víðast hvar snjóþekja eða hálka.

Vestfirðir:  Snjóþekja og hálka á vegum en þæfingsfærð norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálka víðast hvar en snjóþekja á útvegum.

Norðausturland: Víðast hvar hált.

Austurland: Hálka að mestu. 

Suðausturland: Víðast nokkur hálka eða krap.

Suðurland: Snjóþekja eða hálka víðast hvar.

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Vegna vinnu við að breikka Hringveginn er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju.

Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. - Áætluð verklok eru 1. mars nk.

Vaðlaheiðargöng

Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/

Fjaðrárgljúfur lokað

Vakin er athygli á að Umhverfisstofnun hefur lokað Fjaðrárgljúfri en lokunin verður endurskoðuð ekki síðar en 23. janúar. Þetta er gert bæði af öryggisástæðum og til að koma í veg fyrir frekari gróðurskemmdir á svæðinu. Bílastæðið er einnig lokað og ekki er hægt að leggja bílum í næsta nágrenni við svæðið.