Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.1.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi, 21. jan kl 10.00
Spáð er hvassviðri suðaustanlands og hviðum allt að 35 m/s undir Eyjafjöllum og í Öræfum við Sandfell frá um kl. 15 til 16 og fram yfir miðnætti.
Færð og aðstæður
Á Suður- og Suðvesturlandi er hálka eða hálkublettir flestum leiðum en snjóþekja er á Hellisheiði og þæfingsfærð í Grafningi. Þungfært er á Lyngdalsheiði og í Kjósarskarði. Hálkublettir og mikið hvassviðri er undir Eyjafjöllum.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum og þæfingsfærð á mörgum fjallvegum. Þungfært er á Ennishálsi og frá Drangsnesi og yfir í Bjarnarfjörð.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum í Norður- og Austurlandi. Öxnadalsheiði er orðin þungfær. Dettifossvegur er lokaður.
Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni og hvasst í Öræfasveit og óveður á Reynisfjalli.
Tjörublæðingar
Vegagerðin varar við tjörublæðingum á veginum milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.