Umferðarþjónusta - Tilkynning - 21.10.2018

Ingibjörg Daníelsdóttir 2018-10-21 20:36

Færð og aðstæður

Suðurland Éljagangur er á Hellisheiði og hálkublettir.

Vesturland Það er hálka á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku en hálkublettir á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum er snjóþekja, krapi eða nokkur hálka á flestum fjallvegum, raunar þæfingur á Hrafnseyrarheiði. 

Á Norður- og Austurlandi er á köflum nokkur hálka eða krap, einkum á fjallvegum.

Vinna við Hvalfjarðargöng

Verið er að fjarlægja litlu gjaldskýlin norðan við Hvalfjarðargöng. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 30 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Verið er að breikka og endurbæta Grindavíkurveg á tveimur aðskildum 2 km köflum. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.

Þungatakmarkanir við Hrafnsgerðisá á Upphéraðsvegi

Vegna framkvæmda eru sérstakar þungatakmarkanir á Upphéraðsvegi (931). Heildarþungi er miðaður við 4 tonn á ræsi yfir Hrafnsgerðisá við Droplaugarstaði út október.

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) er lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361). Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Hálendið

Vegir eru víða orðnir ófærir á hálendinu en engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.