Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.12.2018

Sigfríður Hallgrímsdóttir 2018-12-19 12:03

Þjónusta um jól og áramót

Umferðarþjónustan ( 1777) verður opin eins og venjulega frá 6.30 - 22.00 nema á jóladag og nýjársdag en þá opnar kl 9.00.
Vetrarþjónusta er alla hátíðisdagana en styttri en venjulega á langleiðum, sjá nánar:

Færð og aðstæður

Greiðfært er á Suðurlandi en hálkublettir eða hálka á fáeinum fjallvegum á Vesturlandi og Vestfjörðum. Einnig eru hálkublettir á Þverárfjalli og hálka eða hálkublettir á nokkrum leiðum á Norðausturlandi.

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa lónsins. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru nú í árslok.