Umferðarþjónusta - Tilkynning - 19.10.2018
Ábending frá veðurfræðingi 19. október kl. 16:30
Kröpp lægð, sem spáð á morgun fyrir vestan land, veldur staðbundnum stormi vestanlands og vestantil á Norðurlandi. Snarpar hviður fylgja í SV-átt á morgun, allt að 40 m/s s.s. í Skagafirði utan Varmahlíðar, í Fljótum og í Eyjafirði milli Akureyrar og Ólafsfjarðar. Frá um kl. 11 og fram á kvöld.
Færðin
Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Hálfdáni og Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi eru hálkublettir á Vatnsskarði.
Vinna við Hvalfjarðargöng
Verið er að fjarlægja litlu gjaldskýlin norðan við Hvalfjarðargöng. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 30 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Framkvæmdir á Grindavíkurvegi
Verið er að breikka og endurbæta Grindavíkurveg á tveimur aðskildum 2 km
köflum. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður.
Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok
2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.Þungatakmarkanir við Hrafnsgerðisá á Upphéraðsvegi
Vegna framkvæmda eru sérstakar þungatakmarkanir á Upphéraðsvegi (931). Heildarþungi er miðaður við 4 tonn á ræsi yfir Hrafnsgerðisá við Droplaugarstaði út október.
Þingvallavegur lokaður
Þingvallavegur (36) er lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361). Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hérHálendið
Vegir eru víða orðnir ófærir á hálendinu en engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.