Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.1.2018

Magnús Ingi Jónsson 2018-01-18 14:01

Tjörublæðingar

Vegagerðin varar við tjörublæðingum á veginum milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði.

Færð og aðstæður

Á Suður- og Suð-vesturlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum. Éljagangur og jafnvel snjókoma er í Hvalfirði og úti á Reykjanesi.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja á vegum. Þæfingsfærð er á Skógarströnd og  flughálka á Barðaströnd.

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Þæfingsfærð er í Hegranesi.

Á Austurlandi er víðast hvar greiðfært en hálka eða snjóþekja á stöku stað. Með Suð-austurströndinni eru hálkublettir eða greiðfært.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.