Umferðarþjónusta - Tilkynning - 18.10.2018
Færð
Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Dynjandisheiði og á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Dettifossvegi.
Framkvæmdir
Unnið verður í dag fimmtudaginn 18. október frá kl.13:00 til kl.22:00 á nyrðri akbraut Geirsgötu og munu akreinar við Austurbakki 2 þrengjast í eina akrein á milli Kalkofnsvegar og Pósthússtrætis. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 30 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Vinna við Hvalfjarðargöng
Verið er að fjarlægja litlu gjaldskýlin norðan við Hvalfjarðargöng og mun sú vinna standa yfir næstu daga. Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 30 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Þungatakmarkanir við Hrafnsgerðisá á Upphéraðsvegi
Vegna framkvæmda eru sérstakar þungatakmarkanir á Upphéraðsvegi (931) og heildarþungi miðaður við 4 tonn á ræsi yfir Hrafnsgerðisá við Droplaugarstaði út október.
Framkvæmdir á Grindavíkurveg
Verið er að breikka og endurbæta Grindavíkurveg á tveimur aðskildum 2 km
köflum. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður.
Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok
2018.
Framkvæmdir á Esjumelum
Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi vega- og stígagerð. Umferð um
Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.
Þingvallavegur lokaður
Þingvallavegur (36) er lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361). Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hérHálendi
Vegir eru víða orðnir ófærir á hálendinu en engin þjónusta er á hálendisvegum á þessum árstíma og færð þar er ekki könnuð. Vegfarendur eru beðnir að hafa það í huga áður en farið er inn á hálendið.