Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.8.2018

Kolbrún Benediksdóttir 2018-08-17 18:05

Ölfusárbrú við Selfoss (1)

Búið er að opna Ölfusárbrú

Malbikun á Hellisheiði

Í dag 17. ágúst verður malbikað báðar akreinar til vesturs á Suðurlandsvegi, um 1 km á milli Litlu Kaffistofunnar og vegamóta við Bolöldu. Einni akrein verður lokað í einu og þrengt að umferð.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 7:00 til kl. 22:00

Þingvallavegur lokaður

Þingvallavegur (36) verður lokaður allri umferð milli þjónustumiðstöðvarinnar og eystri gatnamótanna við Vallaveg (361) fram í október. Hjáleið er um Vallaveg (361) Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og því er umferð þar stýrt með ljósum. Brúin hefur reynst í verra ástandi en búist var við og nú er áætlað að vinnan standi fram í síðari hluta september.