Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.7.2017

Magnús Ingi Jónsson 2017-07-17 12:24

Dómadalsleið opin

Vegurinn austast á Dómadalsleið (F225) þar sem allur akstur hefur verið bannaður vegna vatns og aurbleytu, er nú opinn. Þessi hluti leiðarinnar, eins og leiðin öll, er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.

Framkvæmdir á Höfuðborgarsvæðinu

Mánudaginn 17. júlí, er stefnt að því malbika 600m kafla á Breiðholtsbraut, mitt á milli Jafnarsels og Vatnsendahvarfs, báðar akreinar, en unnið verður á einni akrein í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 09:00 og 19:30.

Mánudaginn 17. júlí er stefnt að því malbika á Reykjanesbraut, Hafnarfjarðavegur - Fjarðarbraut á 1200m kafla mitt á milli Kaldárselsvegar og Strandgötu, hjáleið um Ásabraut, báðar akreinar, en unnið er á einni akrein í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 18:00 til 01:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 20. júlí vegna framkvæmda.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér