Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.12.2017
Ábendingar frá veðurfræðingi
Litur gulur: Í kvöld frá kl. 20 og fram yfir miðnætti má búast við sunnan- og suðaustan
8-15 m/s og snjókomu á fjallvegum SV-til og á V-land og Vestfjörðum með
takmörkuðu skyggni.
Færð og aðstæður
Það er víða hálka, snjóþekja eða hálkublettir á Suður- og Vesturlandi. Snjókoma er á Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði en éljagangur er í uppsveitum Borgarfjarðar.
Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar eru ófærar og þæfingsfærð er norður í Árneshrepp.
Á Norður- og Austurlandi er hálka á flestum vegum og sumstaðar flughált en unnið er að hálkuvörn. Skafrenningur er á Fjöllunum.
Hálka eða hálkublettir eru víða með suðausturströndinni en flughált er á Breiðamerkursandi.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru að mestu ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda í veginum.