Umferðarþjónusta - Tilkynning - 17.11.2018

Ingibjörg Daníelsdóttir 2018-11-17 11:19

Ábendingar frá veðurfræðingi: 17. nóv. kl. 07:30

Litur: Gulur

Nú með morgninum er heldur að bæta í vind á ný suðvestan- og vestanlands. Reikna má með hviðum allt að 35 m/s fram á miðjan dag s.s. utantil á Kjalarnesi, í Hvalfirði, undir Hafnarfjalli og við Borgarnes. Svipað á norðanverðu Snæfellsnesi og síðan austur við Hvamm undir Eyjafjöllum.   

Færð og aðstæður

Suðurland: Það er hvasst undir Eyjafjöllum og við Markarfljót. Mjög dimm þoka er á Hellisheiði.

Suðvesturland: Talsverðar vindhviður eru á Sandskeiði, og líka á Reykjanesbraut þar sem  vindur stendur þvert á veg. Eins er hvasst á Kjalarnesi, í Hvalfirði og við Hafnarfjall.

Vesturland: Óveður er á Fróðárheiði og norðanverðu Snæfellsnesi. Sérstaklega er varað við veðri í Búlandshöfðanum þar sem skemmdir hafa orðið á slitlagi vegna foks.

Vestfirðir: Hálka er á Dynjandisheiði og krapi á veginum norður í Árneshrepp. Það er hvasst á Kleifaheiði.

Vinna og tafir við Svínafellsá í Öræfum

Vinna við brúna á Svínafellsá liggur niðri fram yfir helgi en engu að síður er nauðsynlegt að lækka umferðarhraða á vinnusvæðinu í 50 km/klst. Þegar vinna hefst aftur í næstu viku má búast við talsverðum töfum, frá því um hádegi á mánudag og fram eftir vikunni, en umferð verður stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63)

Ásþungi er takmarkaður við 7 tonn á Bíldudalsvegi ( 63) frá Hvassanesflugvelli ađ Helluskarði (gatnamót Vestfjarðavegar (60) og Bíldudalsvegar).

Framkvæmdir á Grindavíkurvegi

Framkvæmdir standa yfir á Grindavíkurvegi, milli afleggjara að Seltjörn og Bláa Lónsins. Verið er að breikka veginn og þarf á hluta framkvæmdatímans að mjókka hann töluvert. Unnið er á einni akrein í einu og umferðarhraði tekinn niður. Búast má við einhverjum umferðartöfum en áætluð verklok eru í árslok 2018.

Framkvæmdir á Esjumelum

Verið er að byggja hringtorg á Esjumelum við Norðurgrafarveg og auk þess er unnið þar að undirgöngum fyrir gangandi ásamt tilheyrandi  vega- og stígagerð. Umferð um Vesturlandsveg er beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst.