Umferðarþjónusta - Tilkynning - 16.4.2018

Jón Hálfdán Jónasson 2018-04-16 8:00

Færð og aðstæður

Greiðfært er um allt land. Þoka er á Fjarðarheiði og einnig er þoka víða norðaustanlands.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur nú yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka. Umferð er stýrt með ljósum og áætlað er að vinnan standi út júlí.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.